Ný skilgreining leikmanns á Reykjanesi

Það er gaman að sjá jarðvísindamenn segja skemmtilega frá því sem er að gerast teigja og tog, hvernig landið liggur er berggangurinn lóðréttur eða láréttur? Verður gos og verður gos fyrir háttatíma eða verður maður að láta vekjaraklukkuna vekja sig til að missa ekki af neinu.

En hvernig er hægt að skilgreina þetta stóra svæðið.

Reykjanes er eitt stórt eldfjall sem nær út á Reykjanes hrygg og að Bláfjöllum. Allsstaðar er möguleiki á eldsumbrotum Það er með mörgum strompum og lúgum,sem eru fjöll eins og Keilir og Þorbjörn, hólar og dyngjur. Svo eru hingað og þangða á sléttlendi hlerar eða lúgur sem geta skyndilega opnast og þar getur komið upp hraun aldrei með mikilli ösku frekar hraunvella.

Þannig horfir málið frá mér. Mér datt þessi texti í hug frá því að við hjónin vorum að mæla tún á jörðinni Ásbúðum á Skaga sumarið 1969. Okkur var boðið til betri stofu til hádegismatar. Þar voru pelagoníur í gluggum.

Svo leið langur tími og ekkert gerðist, nema þröstur flaug á gluggan og vankaðist kötturinn fékk hann í hádegismat.

Skyndilega opnaðist lúga á miðju stofugólfinu og lítil kerling skaust upp með matinn og lagði hann á borðið og var horfin á svipstundu niður um gatið og lokaði lúgunni. Okkur fannst þetta mjög fyndið. Sem sagt undir stofuni var eldhúsið og þar brann eldur.

Maturinn var góður.

 


mbl.is „Eins og að horfa á málningu þorna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Alls ekki má leggja nýjan flugvöll við Hafnarfjörð en í góðu lagi að byggja íbúðarhús á hrauni í Hafnarfirði, þriðja stærsta bæ landsins, og að fleiri en fjögur þúsund manns búi í Vestmannaeyjabæ við hliðina á eldfjalli sem gaus fyrir 48 árum. cool

Og væntanlega er mun gáfulegra að byggja þúsundir íbúðarhúsa á Vatnsmýrarsvæðinu en á gömlu hrauni í Garðabæ og Hafnarfirði. cool

Hins vegar er hægt að reisa varnargarða gegn hraunrennsli og kæla hraun með vatni eða sjó til að stöðva framrásina, eins og gert var í Vestmannaeyjum.

1.3.2021:

""Hraun flæða venjulega í rásum og geta þá farið hratt en þegar þau fara út fyrir rásirnar ná þau ekki meira en gönguhraða.

Meðalstærð hrauns sem hefur komið upp á yfirborðið í eldgosum á Reykjanesskaga er um tíu ferkílómetrar, fimm kílómetrar á lengd og tveir á breidd," segir Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur."

Og varnargarðar gegn snjóflóðum og skriðuföllum hafa verið reistir fyrir milljarða króna á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum til að verja þar nokkur íbúðarhús. cool

Ef nýr flugvöllur verður ekki lagður við Hafnarfjörð verður innanlandsflugið einfaldlega flutt af Vatnsmýrarsvæðinu til Keflavíkurflugvallar og f
lugvellir á Akureyri, Egilsstöðum og í Skotlandi eru varavellir fyrir Keflavíkurflugvöll.

"
Keflavíkurflugvöllur er vel í stakk búinn til að taka við innanlandsflugi, reisa þyrfti nýja flugstöð eða finna henni stað í húsnæði sem til staðar er á vellinum." cool

(Innanlandsflug um Keflavíkurflugvöll, möguleikar og samfélagsleg áhrif - Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja, janúar 2014.)

En Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að sjálfsögðu ekki að reisa fleiri hús á gömlu hrauni í Garðabæ og Hafnarfirði og þar að auki ætlar flokkurinn að flytja á brott alla íbúa Vestmannaeyjabæjar strax í fyrramálið.
cool

Þorsteinn Briem, 3.3.2021 kl. 21:19

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Hæ nafni, ég sá það þarna á Völlunum þar hafa Hafnfirðingar byggt heilt hverfi í gömlum hraunfarvegi úr Bláfjöllum, sem hefur farveg út í sjó og blasir við hverjum sem er. Undarlegt satt að segja.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 3.3.2021 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband