Fanta gott viðtal og upplýsandi

Viðtalið við Jón Þór var mjög gott og upplýsandi Hann vandaði sig fannst mér og ekkert var ofsagt og ég kem ekki auga á hvort hann hafi brotið  trúnað allavega ekki gagnvart almenningi. Það er skiljanlegt að ýmsir séu nú á varðbergi þegar svona mál koma upp.

Náttúrlega þurfa ráðherrar að vera í sambandi við sínar undirstofnanir og vita hvað er að gerast, en tæplega svo mikilsvert að það þurfi að spilla helgihaldi jólannan hjá lögreglustjóranum. Þó má ef til vill segja að ef símtalið hefur verið stutt, þá sleppur þetta. Það er gert grín að þessu í Fréttablaðinu í dag, má það??!!

Held að best sé eins og Jón Þór segir að það þarf að taka utanum þetta mál og hverjir verkferlarnir séu og þoka því áfram. Almenningur getur orðið mjög smásmugulegur um það að valdamenn haldi og virði lögin og ekki sé hægt að hringja út og suður, til að koma þeim í skjól. Þá væri kominn tími til að setja gamla sveitasímann  upp þar sem allir vita allt um alla.

Lögreglumennirnir hafa ef til vill hlaupið á sig að upplýsa að hæstvirtur ráðherra hafi verið að skoða málverk þarna. Það er alltaf tilhneyging hjá ráðastéttinn að vilja komast hjá því hlutirnnir komi í ljós.


mbl.is Segja trúnaðarbrest í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þar sem ýjað er að því undir rós í þessari "frétt" að framganga Jóns Þórs tengist eitthvað yfirstandandi prófkjöri Pírata, er rétt að fram komi að hann er alls ekki í framboði.

Þetta er semsagt bara skítadreifarinn sem er í gangi.

Guðmundur Ásgeirsson, 4.3.2021 kl. 17:28

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Einmitt hann er bara með heiðarlegum hætti að vinna vinnuna sína, en ekki í slagtogi með einhverju og einhverjum.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 4.3.2021 kl. 17:34

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Títt við páfann tefla skák,
talsvert er þar streðið,
ekkert sjalla er hálfkák,
enn eitt fellur peðið.

Þorsteinn Briem, 4.3.2021 kl. 17:44

4 identicon

Sigrún Gupmundsdóttir (IP-tala skráð) 4.3.2021 kl. 20:08

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Alveg rétt Sigrún.

Það er enginn drengsskapur í dylgjum um að Jón Þór hafi rofið trúnað þegar hann gerði það alls ekki.

Guðmundur Ásgeirsson, 5.3.2021 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband