Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Einhver tjaldbúi ætti að dulbúa sig sem sjálfstæðismann og smokra sér inn á Landsfundinn og flytja eftirfarandi tillögu;

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hafnar því algjörlega að Austurvöllur sé notaður sem tjaldsvæði fyrir mótmælendur. Fundurinn ítrekar að þessi tjöld geti skyggt á styttu Jóns Sigurðssonar forseta og mótmælenda.

Fundurinn furðar sig á því að þeir á Hótel Borg skuli ekki vera búnir að mótmæla þessu tjaldbúðarlífi, nóg er nú plássið á Borginna. Enn furðulegra er að dómkirkjuprestar skuli ekki vera búinir að gera athugasemdir við þetta hátterni.

Fundurinn varar borgarstjórn Reykjavíkur alvarlega við að skipta sér af þessu máli, nema því aðeins að útveguð verði salernisaðstaða ef mótmælin dragast á langinn.

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins mun aldrei taka ábyrgð á Hruninu eða nokkru sem því tengist.

Aldrei.

Enda var það fólkið sem brást ekki flokkurinn eins og karlinn sagði.


mbl.is Tjöldin ekki til prýði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband