Ísbirnir éta lítil börn

HornstrandarefurÍsbirnir éta lítil börn þegar þeir eru svangir. Þeir eru ógurlega sterkir  og geta brotist út úr búrum sínum og tekið börnin. Þetta er staðreynd. Ég mundi ráðleggja barnafólki að taka ekki mark á Bestaflokknum varðandi þessi ísbjarnarmál. Því miður er þetta ekki raunhæft mál.

Hitt er eðlilegra að Bestiflokkurinn boðaði borgarafundi vítt og breytt um borgina þar sem þessi mál væru rædd samhliða skólamálunum og hvað væri í matinn í skólunum og hvort nokkur væri svangur.

Bestiflokkurinn gæti afturá móti efnt til hópferðar í sumar á Hornstrandir og Jökulfirði til að skoða refi. Refir á Þessi er BesturHornströndum eru friðaðir líkt og Bestiflokkurinn í Reykjavík og eru ákaflega fallegir og vinalegir eins og fólkið í Bestaflokknum. 

Læt hér fylgja með myndir af refum á Hornströndum sem voru teknar þar. Takið eftir því að þeir borða af leirtaui.


mbl.is Besti flokkurinn safnar fyrir ísbirni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Árið 1518:

,?Kom bjarndýr eitt mikið, rauðkinnungur,á land á Skaga í Skagafirði við Ásbúðartanga,og sá hvergi til íss af sléttlendi,en þó af há fjöllum. Það dýr var soltið mjög, mannskætt og grimmt;það deyddi 8 manneskjur, sem voru fátækar konur með börnum, er um fóru, og ekki vissu dýrsins von

http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=4255773

Njáll (IP-tala skráð) 3.5.2011 kl. 14:05

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Já vissi ég ekki þetta eru stórhættuleg rándýr og svo vill Besti fara ala þetta í borginni.

Dæmalaust alveg. Allskonar vitleysa í gangi.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 3.5.2011 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband