Hvað þýðir orðið mútur?

Orðið mútur er oftast notað um það þegar borið er fé á menn í hagnaðarskini þ.e. fá einhverjar ívilnanir í staðin eða gott veður í einhvejum málum.

Samkvæmt Íslensri orðabók þýðir orðið mútur einnig;

1 tíminn , þegar fuglar fella fjaðrir.

2 raddarhæsi á kynþroskskeiði pilta.

Heimild: Íslensk orðabók bls 451. Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1963.


mbl.is Biðst ekki afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Mútur hafa lengi tíðkast en aldrei hefur verið fett fingur út í þær. Jónatan Þórmundsson fyrrum prófessor í Lagadeild fjallar um mútur í ÚLFLJÓTI, tímariti laganema fyrir um 40 árum. Þar er útlistað mjög nákvæmlega um hvað þetta fyrirbæri er og heimfært undir þau ákvæði hegningarlaganna sem við á.

Mútur hafa lengi tíðkast, einning hjá íslenskum aðilum. Kunnugt er þegar skreiðarsalar mútuðu embættismönnum í Nígeríu til að fá fyrirgreiðslu. Á þetta reyndi óbeint fyrir dómstólum hér en  skreiðarsalar vildu telja múturnar til kostnaðar sem væri frádráttarbær. Á það féllust skattyfirvöld ekki.

GJ

Guðjón Sigþór Jensson, 2.5.2011 kl. 18:25

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Þetta er fróðlegt. Það átti sem sagt að nota mútukosnaðinn sem gjöld!!!

Það væri áhugavert að það væri upplýst hvernig styrkveitendur færa þetta til frádráttar í bókhaldi sínu.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 2.5.2011 kl. 19:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband