Þjóðgarðurinn á Þingvöllum

 Málavextir:

,,Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar, kveðst í yfirlýsingu ekki hafa séð bókun sem nefndarmenn Sjálfstæðisflokksins boðuðu vegna orða sem féllu milli Þráins Bertelssonar og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur".

Álfheiður gefur eftirfarandi yfirlýsingu:

,,Núverandi Þingvallanefnd hefur á starfstíma sínum tekist að vinna að framgangi margra heillavænlegra mála sem varða framtíð þjóðgarðsins á Þingvöllum og hefur nefndin verið samstíga um allar stærstu ákvarðanir".

Síðan er greint frá orðkarpi milli alþýðuforingjans Þráins Bertelssonar  og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur alþingismanna. Ekki verður fjölyrt um þessi orðaskipt þar sem almenningur hefur ekki fengið upplýsingar um þennan fund. Síðasta fundargerð sem er birt um störf Þingvallanefndar á netinu er frá 2. febr. 2011. Síðan eru liðnir 3 mánuðir.

Kjarni þessa máls er sá að Þingvallanefnd er búin að samþykkja að framlengja lóðarleigusamninga vegna sumarbústaða við Þingvallavatn innan þjóðgarðsins sem henni bar engin skylda til.

Að mínu mati átti að semja brottfara- og rýmingaráætlunáætlun sumarbústaða úr þjóðgarðinum og gefa eigendum hæfilegan frest til þess og þá á ég við nokkur ár.

Þá er það tilefni til athugunar hvort sumarbústaðaeigendur innan þjóðgarðsins hafi verið á listum til framboðs til dómnefndarstarfa vegna Hugmyndaleitar en það gerir þá vitaskuld vanhæfa til starfa vegna eigin hagsmuna innan þjóðgarðsins.


mbl.is Bókun hefur ekki borist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband