Pókersvipur og rauð strik

Það var gaman að fylgjast  með þessari samningsgerð allir hræddir við alla, nema Sólveig Anna og ríkissáttasemjari enda er hann svo stór og sterkur Margir með póker svip. Þessi forsenduákvæði voru nú kölluð að setja rauð strik hér áður fyrr. En nú verður þetta að heita eitthvað flottar sem fer vel við tíðarandan og fínu hallirnar.

Jakinn var nú oft með rauðu strikin á vörunum um leið og hann snýtti sér. Það má engin fara yfir á rauðu, þannig er það í umferðinni.

Ef kaupmáttur rýrnar þá fer nú verkalýðshreyfingin sennilega að  setja sjálf sína taxta og setur svo tvö rauð strik undir, eins og í alvöru bókhaldi. Þannig liggur  nú málið.

Og ef Seðlabankinn fer að hreyfa sig, þá kárnar nú gamanið og einhver látinn snýta rauðu, svona upp á gamla móðinn. Eins og það heitir á góðri íslensku. Það held ég nú.


mbl.is Samkomulag í höfn um forsenduákvæðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband