Forseti Íslands staðfesti lögin um stjórnlagaþing

Það er erfitt fyrir Jóhönnu að gefa skýringar á þessu máli. 

Það er fyrst og fremst handhafar löggjafarþingsins sem samþykkja lögin um stjórnlagaþingið sem verða svara fyrir gallaða lagasetningu.

Handhafar löggjafarþingsins , Alþingi, eru 63 Alþingismenn og forseti Íslands.

Forseti Íslands hefur tekið sér þá stöðu að vera með íhlutunarsemi við lagasetningu sem honum er tryggð í stjórnarskrá með svokölluðum málsskotsrétti. Hann ber  því eðli máls allnokkra ábyrgð. 

Þetta er fyrst og fremst áfellisdómur yfir löggjafarstarfinu og get ég ekki séð að þingmenn Sjálfstæðisflokksins geti riðið feitara hrossin frá þessu máli en aðrir Alþingismenn.

Ég harma það ekki að þessi lög hafi verið dæmd ógild.

Ég hélt upp hér á mínu bloggi og í athugasemdum hjá öðrum bloggurum málatilbúnaði um það að þetta forgangröðunarkerfi sem átti að innleiða væri óréttlátt.

Ég vildi að kjósandinn gæti greitt þeim 25 stjórnlagaþingskandídötum sem bar að kjósa, öllum jafnt atkvæði eins og venja er í óbundnum kosningum svo sem til sveitarstjórna, í félagskerfi okkar þar sem ekki er listi í framboði.

Kjósendur voru í raun kúgaðir til að raða upp lista eins og tíðkast hjá stjórnmálaflokkum í prófkjörum.

Ég mun svo í framhaldi þessa máls fara skoða kæru mína  sem Alþingi var sent  1. maí 2009 vegna misvægi atvæða eftir kjördæmum.

Það skyldi þó ekki vera núverandi Alþingi sé ólöglega kosið?


mbl.is Krefjast skýringa forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband