,,Góði komminn"

Í Morgunblaðinu 16. júlí 2009 segir að Rússalán séu í höfn:

,,Rússnesk stjórnvöld hafa ákveðið að veita Íslendingum lán upp á 500 milljónir Bandaríkjadala, 64 milljarða íslenskra króna. Aðstoðarfjármálaráðherra Rússlands, Dmitry Pankin, staðfestir þetta við rússneska dagblaðið Vedomosti. Skilyrði lánsins liggja ekki endanlega fyrir en Vedomosti hefur eftir talsmanni íslenskra stjórnvalda að samningaviðræður séu enn í gangi".

Nú draga Rússar þetta loforð til baka. 

Er þá Steingrímur J., ekki nógu góður kommi?  Þetta hlýtur að vera áfall fyrir vissa menn.

Rússar eru að gera okkur ákveðinn óleik með því að lofa láni, sem þeir standa svo ekki við, óháð því hvort við þiggjum það eða ekki.

Þeir eru að mínu mati að gera tilraun til að gera landið verðlaust með þessu, sem þeim tekst ekki. Hér liggur eitthvað að baki, sem Steingrímur verður að láta rannsaka.


mbl.is Verið að endurmeta lánaþörf Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband