Engir leynifundir

Færslan hér að neðan um sameiningu Frjálslyndra og Borgarahreyfingunnar er aprílgabb og ekki fótur fyrir henni.

Aftur á móti veit ég ekki alveg hvort ég hafi hlaupið 1. apríl eða ekki. En það var ríkur vilji til þess hjá mér og ég er ekki búinn að fá botn í það mál enn.

Þannig var að ég skrapp til Selfoss eftir vinnu og heyrði í útvarpinu  að það ætti að bjóða upp flotta bíla hjá Sýslumanninum í Skógarhlíð í Reykjavík. Ekkert lágmarksverð. Ég var nærri búinn að snúa við. Ég veit ekki hvort þetta var aprílgabb eða ekki. Hef ekkert séð um þetta í fjölmiðlum. Kannski verður þetta á morgunn!!!???


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband