Eldtungur upp úr þakinu

Ég var í Strætó á heimleið kl:16:00 frá Ártúni og þá sá ég eldtungur loga upp úr þakinu. Síðan breiddist eldurinn undan stífri NV átt og efstihluti hússins varð alelda á nokkrum mínútum. Þegar ég kom á vettvang heyrðust miklar sprengingar í húsinu. Vegfarandi sagði að það hefði verið að setja tjörupappa á húsið. Ekki veit ég það. Ég vona bara að það hafi allir komist út úr húsinu þetta gerðist á örskömmum tíma.


mbl.is Slökkvilið að ná tökum á eldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Datt í hug í framhaldi af þessu, hvernig brunavörnum væri háttað í mínu fyrirtæki, en þar erum við öll á 2. hæð og engar svalir.  Svona atvik geta orðið að stórskaða á örsvipstundu, og þá tjóar lítt að hugsa að hægt hefði verið að koma í veg fyrir slíkt með fyrirhyggju.

Ágústa Björg (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 19:53

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Þetta kveikir í fólki og fyrirtækjum!!... að huga að brunavörnum og útgönguleiðum. Þeir koma ókeypis frá slökkviliðinu að ráðleggja, held ég.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 10.3.2009 kl. 20:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband