Stjórnarskráin og meðferð utanríkismala

Hef alltaf haldið það að utanríkisráðherra hver sem hann er nú á hverjum tíma ætti að bera mál undir utanríkismálanefnd sem væru mikilvæg.

Það hefði nú verið snyrtilegra að kalla  Björgu Thorarinsen prófessor við lagadeild Háskóla Íslands sem hefur skrifað lærða grein um Stjórnarskrána og meðferð utanríkismála, heldur en að kalla Birgi Þórarinsson guðfræðing og stjórnmálamann á Alþingi sem fékk að tala miklu meira en læknirinn sem þekkir til ástandsins á Gasa og hvernig málum er þar háttað. Birgir hefur að vísu einhverja þekkingu á þessum málum og svo hefur hann guðfræðina aukreitis og gæti þá skilið alla skelfinguna sem grasserar þarna í skjóli andskotans.

Auðvitað verður að rannsaka þessar ásakanir á starfsmenn Hinna Sameinuðu þjóða. Spurningin er hvort svona afgerandi  mál komi upp nú við úrskurð stríðsglæpadómsdólsins, sé til þess að dempa umræðu um þjóðarmorð og manndráp á Gasa og spilla fyrir hugsanlegu vopnahléi. Ekki á að trúa öllu, frekar að trúa á hið góða. Hér er samsteypustjórn við völd og því ber að fara varlega og með umhyggju  fyrir öllum hlutaðeigendum.


mbl.is Frysta greiðslur til UNRWA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vel sagt Þorsteinn alveg hjartanlega sammála þér.

Þröstur (IP-tala skráð) 30.1.2024 kl. 06:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband