Fiskmarkaðir nauðsyn, fákeppni er ekki nauðsyn.

Nú er búið að setja lögbann á samkeppni, að vera með frjálsa starfsemi við að mynda verð á veiddum fiski.Hvað segja Sjálfstæðismenn um þetta. Það verður gaman að fylgjast með því. Útgerðarmönnum hefur ef til vill fundist það gott að kaupa fisk af sjálfum sér og ráða verðinu sjálfir við skrifborðið. Allur verðmiðunargrundvöllu hvarf þegar hið opinbera fór að hætta að skipta sér af verðmynduninni.

Það veruður áhugavert að fylgjast með dómarastörfum þegar farið verður að  reyna staðfesta lögbanni með málarekstri og dómararnir lenda í allskonar beyjum og blindhæðum og drulluslörkum þegar þrýstingurin fer að myndast og rauðisíminn fer að hringja ímynda ég mér. En allir heiðarlegir dómarar dæma eftir lögum, því í þeim býr frelsið, þ.e.a.s. lögunum, ekki dómurunum.

Og svo þessi hugsun sem er verið að setja inn  í ráðningarsamninga að þessi og þessi megi ekki vita, þetta og  þetta um hverning á að reka viðkomandi starfsemi. ER ekki gott að menn öðlist reynslu. Varla er hægt að taka menntun og reynslu af fólki.

Er ekki bara verið reyna að hlýfa gróðapungunum og kom í veg fyrir að verð myndist með eðlilegum og sanngjörnum hætti. Það getur nú ekki verið bagi að því, að menn kunni til verka við hvernig á að reka fiskmarkað. Það geta komið fram nýjungar, þegar nýtt batterí fer í gang. Svo er það atvinnufrelsið í stjórnarskránni, það hlýtur að virka í allar áttir.


mbl.is Lögbann á samkeppnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband