Halldór Laxnes og Hildur Guðna

Fólk hefur verið að bera Nóbelsverðlaun  Halldórs saman við Óskarðsverðlaun Hildar Guðnadóttur að mikilvægi fyrir þjóðina.

Það má segja að á þessu tvennu er nokkur munur að mínu mati. Halldór kom með Gullfossi heim og hélt ræðu m.a. um ömmu sína og upp úr hverskonar jarðvega hann væri vaxin.

Þá var þjóðin ekki alveg viss að hún væri mjög góð.

Nú hinsvegar er þjóðin alveg handviss að mínu mati um að hún sé góð. Meir að segja mjög góð. Allt að því montin. Enda búið að vera segja henni það í langan tíma. Dagskrá útvarpsins er full í tíma og ótíma af tónlist. Rétt si svona flutt talað mál inn á milli. Áður fyrr var tónlist flutt í afmörkuðum þáttum. Lög ungafólksins. Óskalög sjúklinga og Óskalög sjómanna með kveðjur frá Jóni og Gunnu. Það gefur á bátinn við Grænland og svoleiðis lög. Svo auðvitað sinfóníutónleikar sem engin skildi nema Vínarvalsana, en þá var dansað. Nú orði dansar gamla fólkið um miðjan dag.

Í tíð Halldórs var hver maður með bók á náttborðinu sínu. Nú segja mælingar að lesskilningur sé heldur bágur og ekki eins mikið fjallað um bókina. Minna talað um bækur fyrir jólin.

Með ömmuna er heldur fastara undir fæti hjá Hildi, því amman er þjóðfrægur vísindamaður og prófessor Margrét Guðnadóttir og rannsakið litlar veirur og bakteríur, sem gerður búsmala bænda skráveifu, en þær sjást ekki nema í smásjá.

Amma Halldórs býr afur á móti í þjóðarminningunni að prjóna sokka út um allt land.

Haaaaaaaaaaaa, handaupplyfting.

Svo veit þjóin litið um kæki eða tiktúrur Hildar ef slíkt er þá yfir höfuð fyrir hendi.

En auðvitað eru þau bæði jafn dýrmæt lítilli  þjóð norður í Dumbshafi, sem engin skilur að geti verið til með texta og lagi. Svo étur þjóðin allan matarforðan upp á sérstökum samkomum á Þorranum. Forði sem dugði langt fram á útmánuði.


mbl.is Hildur velkomin á Bessastaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband