Löggan snéri rétt á mótorhjólunum

picture_075_1271996.jpgVar að koma vestan úr Nauthólsvík og þá sé eg að eitthvað mikið erum að vera á Bústaðaveginu. 5 löggumótorhjól brunuðu í átt að Hótel Loftleiðum, þar næst lögreglubíll, þá 3 Range Rover bílar svartir með skyggðar rúður eins og í bíómyndum, hélt að Baltasar væri þarn á ferð, síðan löggubíll, sjúkrabíl og svo ekki meir. Þeir Óku mjög hratt svo ekki væri hægt að skjóta neinn og hurfu. Menn eru ef til vill ekki eins og Már seðlabankastjóri, með bara eitt skot í byssunni. Hugsanlega geta reiðar rjúpnaskyttur verið á flækingi með gnótt skotfæra og allskonar. Maður veit aldrei. Nokkru seinna hóf sig á loft flugvél frá gamla herflugvellinum í Vatnsmýrinni. Gamanið búið.

Þetta er tilbreyting að sjá svona viðhafnarakstur og eftir að hafa verið að lesa Átakasvæði í heiminum eftir Jón Orm Halldórsson prófessor frá Sauðárkróki er ég ekki hissa að Tjallinn búist við öllu því versta og sé smeikur.Út um allan heim geta verið leyniskyttur og svona verða öryggisreglurnar að vera og allir hafa skilning á því.

En löggan snéri rétt á mótorhjólunum og þeir báru sig hermannlega enda búnir að fá kauphækkun.


mbl.is Breski fáninn sneri öfugt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband