Samvinnunefnd Íslendinga og Kínverja í ferðamálum

Nú er rétt að leggja þetta Grímsstaða mál til hliðar um sinn og einbeita sér að undirbúning að jólum og áramótum.

Eftir að við erum búnir að sprengja alla okkar kínverja upp um áramótin vær áhugavert að stofna til viðræðna við Kínverja um ferðaþjónustu á miðhálendinu.

Eins og kunnugt er eru stór landsvæði að falla til ríkisins í formi þjóðlendna. Forsætisráðherra fer með málefni þjólendna en þær tilheyra ríkinu en bændur hafa beitarrétt víðast í þeim. Sumar þjóðlendur eru illafarnar vegna ofbeitar og væri hægt að sína fram á það með ítölu (hvað má beita mörgum kindum í afrétt), og þyrfti að friða þær fyrir ágangi búfjár.

Mér hefur alltaf þótt vænt um kommúnista og talið að þeir væru sameignarmenn. En ég hef andvara á auðugum kommúnistum sem vilja kaupa upp óskipulögð víðerni, prívat og persónulega.

Áhugavert væri að taka upp viðræður við Kínversk stjórnvöld um uppbyggingu ferðaþjónustu á miðhálendinu. Íslendingar legðu fram land í formi þjóðlendna og Kínverjar kæmu með fjármagnið.

Þetta yrði ekki einhvert einkapot auðmanna í frjálshyggju stíl, heldur samvinnu og sameignarverkefni Alþýðulýðveldisins Kína og Lýðveldisins Íslands, um skýrt afmarkað verkefni.

Íslendingar ættu alltaf sitt land eins og Kínverjar eiga sitt land, en verkefnið væri sameiginlegt. Nú er að sjá hvort raunverulegur  áhugi er á málinu.


mbl.is Ekki hlutverk ráðuneytisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband