Ástandskönnun- brunavarnir

Margir stórbrunar hafa átt sér stað í landbúnaði hér á landi og hundruðir húsdýra farist í eldi á undanförnum árum.

Nauðsynlegt er að fram fari útekkt á brunavörnum til sveita  og ástandskönnun á þessum málaflokki.

Ekki verður lengur við það unað að húsdýr brenni inni.

Í þessu tilfelli hefur væntanlega allur búsmali verið kominn út - vonandi, þó fréttin sé óglögg þegar talað eru um fjósþak, en fram kemur að rekinn hafi verið suðfjárbúskapur á bænum.

Rafmagnsmálin eru oft veiki hlekkurinn í þessum málum og eins er mikill eldsmatur í einangrun í loftum sem oft getur verið einangrunarplast og ef eldurinn læsir sig í það breiðist hann út um byggingar með leifturhraða.

Þetta á almennt um undanfarna bruna, en hér vantar gleggri fréttir af atburðum til að glöggva sig á aðstæðum.

En það er einboðið að gefa þarf brunavörnum til sveita meiri gaum  en gert hefur verið. Vissulega hefur ýmislegt verið gert og mér er kunnugt um að ýmsir sveitarstjórnarmenn hafa áhyggjur af þessum málum.

Væntanlega mun innganga í Evrópusambandið færa þessi mál til betri vegar,  þar sem hagsmunasamtök og stjórnvöld virðast ekki ráða við viðfangsefnið, en reglugerðir Evrópusambandsins bíða við þröskuldinn.


mbl.is Útihús í ljósum logum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband