Samgöngur í Suðvesturkjördæmi

SlóðiMikið kapp er nú lagt á það að koma á þokkalegum samgöngum milli Mosfellsbæjar og Kjalarness.

Miklar vegþrengingar hafa verið þegar maður er að aka út úr Mosfellsbæ vegna framkvæmda. Þó er ein hættuleg brú á svæðinu brúin yfir Leirvogsá, sem í raun má segja að sé einbreið, þar sem ekki er einu sinni umferðareyja eða vegrið sem greina akreinar hvor frá annar.

Í Suðvesturkjördæmi eru 58200 kjósendur og kjördæmið hefur 12 alþingismenn en ætti með réttu að hafa 16 alþingismenn og er það langstærsta kjördæmi landsins.

Ögmundur Jónasson er þingmaður úr Suðvesturkjördæmi og hygg ég að það sé í fyrsta skiptið að jafnfjölmennt  kjördæmi hafi hýst samgönguráðherra.

Það er ánægjulegt að allir geti nú ekið Héðinsfjarðargöng og Hófaskarðsleið en mikil mildi að samgönguráðherra hafi ekki orðið úti í skarðinu.


mbl.is Vonskuveður við opnun vegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband