Hver á útsýnið?

Mig minnir að bætur fyrir lagningu vega felist í útreikningum á missi af uppskeru og beit. Veghaldarinn tekur ekki sjálft landið til sín eins og margir halda að Vegagerðin eigi allt land undir vegi á Íslandi.Ef svo væri yrði að leggja fjallskil á Vegagerðina, því margt fé gengur í lausagöngu í vegstæðum og er til óþurftar. Nú, nú umrætt útsýnisplan er eftir því sem mér skilst útskot upprunalega setta af veghaldara. Hver á að halda því við ef koma holur í það. Verður þá kallað á Vigdísi Hauks að setja blóm í holurnar? Hvað ef hún verður upptekin við að stjórna borginni og Eyþóri?

Landeigandinn á Hraunfossa og vill hafa tekjur af því að þeir séu barðir augum. Þetta gæti orði mjög flókið mál og skemmtilegt. Svoleiðis mál þurfa að vera í gangi.

Það verður fróðlegt að fylgjast með því, hver má draga andan, þegar loftslagsváin skellur á af fullum þunga og skortur veður á súrefni, ef sú yrði raunin.


mbl.is „Virkar eins og hreppapólitík“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. maí 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband