Hver á útsýnið?

Mig minnir að bætur fyrir lagningu vega felist í útreikningum á missi af uppskeru og beit. Veghaldarinn tekur ekki sjálft landið til sín eins og margir halda að Vegagerðin eigi allt land undir vegi á Íslandi.Ef svo væri yrði að leggja fjallskil á Vegagerðina, því margt fé gengur í lausagöngu í vegstæðum og er til óþurftar. Nú, nú umrætt útsýnisplan er eftir því sem mér skilst útskot upprunalega setta af veghaldara. Hver á að halda því við ef koma holur í það. Verður þá kallað á Vigdísi Hauks að setja blóm í holurnar? Hvað ef hún verður upptekin við að stjórna borginni og Eyþóri?

Landeigandinn á Hraunfossa og vill hafa tekjur af því að þeir séu barðir augum. Þetta gæti orði mjög flókið mál og skemmtilegt. Svoleiðis mál þurfa að vera í gangi.

Það verður fróðlegt að fylgjast með því, hver má draga andan, þegar loftslagsváin skellur á af fullum þunga og skortur veður á súrefni, ef sú yrði raunin.


mbl.is „Virkar eins og hreppapólitík“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Hvaða loftslagsvá ertu að tala um, Þorsteinn? Ertu að tala um hnattræna hlýnunarsvindlið?

Aztec, 17.5.2018 kl. 16:00

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Einmitt

Þorsteinn H. Gunnarsson, 17.5.2018 kl. 16:24

3 Smámynd: Aztec

laughing

Aztec, 17.5.2018 kl. 16:42

4 identicon

Sæl öll. Það vill svo til að Hraunfossar eru í landi Gilsbakka sem er handan árinnar frá þessu þrætudæmi séð. Svolítið fyndin umræða að landeigendur séu að selja sýn á eigin eign. Barnafossar afturámóti eru að hálfu í eigu Hraunsáss og þaðan voru reyndar börnin sem fossarnir þeir eru kenndir við. Þeir fossar afturámóti eru ekki í eigu sömu Hraunsásseigenda og mest er um rætt. 

Einar Oskarsson (IP-tala skráð) 18.5.2018 kl. 14:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband