Ég vil elska mitt land. Staðaruppbót

Vel að merkja, hvað ætlaði ríkisvaldið að leggja í púkkið? 

Það hefu hvergi komið fram.

Nú reynir á frumkvæði frumlegheit og samstöðu.

Staðaruppbót?

Breyta kosningarkerfi.

Laga stjórnarskrá sem er með bleyju?

Fjölga kjördæmum? Þannig að landamerki jarða ráði mörkum?

Ég var í jarðaför.

Þar var margt skrafað og spekekúlerað.

Brýna kutana?

En hverja á að setja á?

Staðan er vissulega erfið og þarf að gæta að mörgu.


mbl.is Reynslan sýni betri árangur með aðgerðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kostnaðarmat Eflingar

Nú er farið að gera kostnaðarmat um margt .Atvinnulífið gerir kostnaðarmat, Landspítalinn gerir kostnaðarmat á læknisverkum. Þeir vita hvað kostar að taka botlanga. En það hefur lítið verið um það að verkalýðsfélög  geri kostnaðarmat fyrir sína umbjóðundur , en nú liggur það fyrir. Það hefur verið í tísku að vera í miklu samfloti við samningsgerð og töluvert um það sagt að það sé til að tryggja stöðugleika, en hverra ? Varla fyrir fátækt fólk, heldur þeirra ríku. Margt fer aflega í okkar þjóðfélagi, vegna rangra ákvarðanna þó reynt sé að gaumgæft þær og segja að þær séu gerðar faglega. Margt hefur verið gert í sjávarútvegi á liðnum tíma og taprekstur bæjarútgerða stöðvaður í þeirri merkingu að atvinnutækinn hafa verið afskrifaður og fiskveiði réttindin afhent til fárra og lítið hirt um að gjald sé greitt fyrir þau réttindi.  

En ef horfum til hagræðingar þá hefur það verið talið gott að vinna meira af fiski á sem fæstum stöðum og að aka fiski þvers og kruss um landið. Er það í góðu lagi? Jú ef útgerðin telur sig græða á því. Þar kemur til að kostnaðarmat hefur ekki farið fram á öllum þáttum  vinnslunnar. Það hefur ekki farið fram kosnaðarmat á  slit þjóðvega við þessa gífurlegu aukningu á þungra ökutækja og er komið að þeim tímapunkti að viðhald vantar víða og í sumum tilfellum eru vegir að sligast undan þessu í orðsins fyllstu merkingu, vegna ónógs kostnaðarmats. Jarðgöng farið oft yfir kostnaðaráætlanir þar sem kostnaðarmat var vitlaust.

Verkalýðshreyfingin hefur ýmsum hnöppum að hneppa öðrum en bara að krefjast meira. Hún er slagkraftur lýðveldisins og lýðræðis. 

Stöndum saman um það góða. Einu sinni var auglýst, mikið fyrir lítið. Einn gamall bóndi í minni sveit kom til mín og skildi þetta ekki. Nú er mikið farið að kalla eftir þessu frá atvinnurekendum.

Höfundur er fv. eyrarkall og Dagsbrúnarmaður.

 

 


mbl.is „Við skulum bara sjá hvað gerist“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þér hrútar ég kveð yður kvæði. Guðmundur Ingi Kristjánsson Önundarfirði.

Snilldar kvæði eftir karlinn. Menningarbragur að góðu hóteli þarna. Hrútarnir mundu nú gera usla í skóginum og stanga ferðamenn  ef þeir rynnu úr fjallinu (Útlenda) hvað þá? Það er gaman að vera bóndi og geta farið með svona kvæði eftir vestfirskan bónda.

1.
Þér hrútar, ég kveð yður kvæði.
Ég kannast við andlitin glöð
er gangið þér allir á garðann
að gjöfinni, fimmtán í röð.
Í heyinu tennurnar hljóma
við hornanna leikandi spil.
Það bylur í jötunnar bandi
og brakar við stein og þil.
2.
Í hóp yðar stöðvast ég stundum
og stend yður dálítið hjá.
Ég hallast við bálkinn og horfi
í hrútsaugun, skynug og blá.
Ég bökin og bringurnar spanna
og blíðlega strýk yfir kinn.
Þér heilsið með hornum og vörum.
Hver hrútur er félagi minn.
3.
Ég veit yðar látbragð og leiki
er losnar um fjárhúsvist.
Þá gangið þér greiðir í túnið
og gleðjist við atlögur fyrst.
Og margur er merktur og særður,
en minnstur sá hrútur er veik.
Og hugfanginn horfði ég löngum
á hornanna blóðugan leik.
4.
Svo fylgi ég ferlinum lengra.
Þá fagnið þér vorlífsins hag
er fetið þér snöggir til fjalla
einn farsælan góðviðrisdag.
Í háfjalla hlíðum og drögum
er hrútanna kjarnmikla beit.
Og sælt er að standa uppi á stalli
og stara yfir kyrrláta sveit.
5.
Er sólríku sumrinu hallar
þá sést yðar útigangsbragð.
Þér komið af öræfum allir
með aurugan, blaktandi lagð.
Þótt gott væri hnjúkinn að gista
við gróður og útsýni hans
þá lutuð þér herskáum hundum
og hrópyrðum smölunarmanns.
6.
Þar komið þér kátir og feitir.
Ég kannast við andlitin glöð
er haldið þér allir sem hópur
að húsunum, fimmtán í röð.
Á veggjunum villist þér ekki,
en vitið um hurðir og þil.
Svo heilsið þér herbergjum yðar
með hornanna leikandi spil.
5.
apríl 1931
Heimild: Tekið úr Húnaflói- vísna og kvæðasafn.
Guðmundur Ingi Kristjánsson bóndi
Kirkjubóli Önundarfirði ÍS.
Heimild:Sóldagar bls.22-23

mbl.is Rís lúxushótel í Önundarfirði?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoða skýrsluna betur og leggja svo á ráðin.

Það er spurning hvort þurfi að setja á fót nýtt ráðuneyti? Hvort ekki sé hægt að vista þetta mál einhverstaðar eins og var gert með Seðlabankann fyrst þegar verið var að koma honum á fót.

Slík skrifstofan heyrði undir 2 ráðuneytum, forsætisráðuneyti og utanríkisráðuneyti.

 Nató þarf að íhuga, sem fyrst að reka alla kafbáta á Norður Atlandshafi heim til sín. Slík hernaðartól sem geta sett kjarnorkusprengju í loftið er ólíðandi innan lögsögu fullvalda ríkja.

Bara smala þeim heim, en sennilega örðugt að henda á þá djúpsprengujum.

Svo þarf að efla friðarsamtök og eitt af samningsmarkmiðum í fyrirhuguðum samningviðræðum þó Rússar byrji með glannalegar yfirlýsingar og setja sjálfir skilyrði að hvernig var það orðað, annars verður okkar smningmarkmiðum framfylgt af rússneska hernum. Þannig fara samningsviðræður ekki fram.

Ég sá á myndbandi þegar verið var að starta rússneskum skriðdreka þá var það svipað og þegar Willysjeppa var starta árið sem ég fæddist. Systir mín sagði í fimmtugs  afmæli mínu að ég hafi komið undir á friðardaginn, eftir seinni heimstyrjöldina.

Það væri nú mannsbragur af Rússum að standa fyrir svoleiðis ,,uppákomum ; Heimurinn ætti að geta haft nógan frið.Best væri að skriðdrekarnir yrðu bensínlausir eða að þá vantaði varahluti.


mbl.is „Þurfum við e.t.v. á varnarmálaráðuneyti að halda?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorrablót og árshátíðir

Hélt að svart væri klassísur jarðafara klæðnaður, en svona gellu og sprellkjólar fyrir árshátíðir og þorrablót eru það nýjasta. En nú er einhvernig tíðarandinn mjög breyttur og engin skilur upp né niður í nýungunum alveg eins og á Reykjanesbrautinni.

Það hefði orðið gaman fyrir björgunarsveitarstrákana að fá svon konur í fangið og reyna hlýja þeim.


mbl.is Kjólar markaðssettir fyrir jarðarfarir valda usla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru ráðherrar ráðugir og herrar?

Sigurður Ingi Jóhannsson  telur að það sé óboðlegt að Reykjanesbrautin hafi verið lokuð svona lengi og spurning hvaða ráð hann hafi gefið til að koma málum í rétt horf?

Þetta mál þarf bara að rannsaka í botn hvað kom fyrir, þó björgunarsveitarfólk og Vegagerð hafi nú einhverja hugmynd um það.

Það er gott að nema af fortíðinni og margir eru  sem muna eftir því að bílum var safnað saman við rætur fjallvega og svo fór veghefill á undan og allt gekk eins og í sögu.  Hann var jaxl á Holtavörðuheiðinni Grænumýrarbóndi sem sá um Holtavörðuheiði lengi og svo auðvitað Gunnar heitinn í Hrútatungu. Ekki var mikið um að smá bílar sætu fastir, menn létu það varla spyrjast um sig. Fólksvagen var algengur. Hann var með vélina að afta og reif sig áfram og það var gott að skutla sér í gegnum skafla á ferðinn. Keðjur var hægt að nota. Nú er það varla hægt vegna þess hve allt er þröngt.

Frekar að flutningabílar lentu  stundum í erfiðleikum og þá var oft eitthvert keðjuvandamál.

Eðlilegast er að Almannavarnir hafi frumkvæði að því að málið sé rannnsakað og fært til bókar og ljóst að ráherrann vill eitthvað gera. Það þýðir ekkert að fara kalla menn á einhverja mottu og skammast. Flugfélöginn eiga að krefjast að lögreglan rannsaki þetta allt saman. Fólk er að lenda í þungum útgjöldum vegna  hótelgistinga, sem ekki var gert ráðð fyrir á kostnaðaráætlun ferðarinnar og hver borgar? Svo leiðindi  að lenda í svona þegar fólk ætlar að fara láta sér líða vel.

Nú dugar ekkert ennnnn. Hér er um mörg atkvæði að tefla og málið smitar inn í stofur og mikið fylgi hrynur af ráðamönnum.

 


mbl.is Björgunarsveit flutti líffæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðstæður, pirringur úrræði og æðruleysisbænin.

Það er ástæulaust fyrir almenning að skamma björgunarfólki sem er á lokunarpóstum. Það er hlutverk lögreglu að loka vegum, en lögregla heimilar björgunarsveitum að gæta lokunarpóstum. Er það gert af því að lögreglann hefur nóg á sinni könnu, þess vegna er spurning um hvernig hægt er að merkja starfsmenn lokunarpóst svo það sé augljóst að Björgunarsveitarfólk er með allan rétt til starfans. Hafa einn lögreglumann í lokunarpósstagenginnu, ellegar heimild í reglugerð að björgunarsveitafólk hafi heimild að klæðast sjálflýsandi vestum merktum lögreglu. Allir ættu að geta verið sammála að björgunarsveitir eru ekki þarna staddir að ganni sínu. Þegar menn eru á stórum jeppum þá finnst þeim að þeir hafi einhvern meiri rétt að fara um. Það er miskilningur en þeir hjálpa oft öðrum og eru allir þakklátir fyrir það.

Nú er ljóst af lýsingum að á Reykjnesbraut hefur þróast kaos sem gerist við þessar aðstæður. Dýrt er að flytja bíla í burtu á dráttarbílum eða sérbúnum bílum og væri það of áhættusöm aðgerð þó hún væri augljós til að koma snjómoksturstækjum að. Það getur vantað lagabókstafin til að mögulegt sé að framkvæma slíkt og hver borgar?

Ein spurning: er gamli Vatnsleysustrandarvegurinn opin og ef ekki er hægt að opna hann til bráðabirgða og með nægu öryggi til að það sé hægt hleypa umferð á hann í aðra áttina?

Þá er það síðasta úrræðið sjómannsþjóðarinnar. Eru tiltæk skip til að ferja flugfarþega til og frá Keflavík- Reykjavíkur við neyðaraðstæður sem nú ríkja fólk í uppnámi sem er búið að skipuleggja fyrir löngu utanlandsferð og allt í pati og öngþveiti. Landhelgisgæslan??. Kannske verður hægt að nota Maríu Júlí í svona vekefni Hvar er Óðinn gamli?


mbl.is Fólk pirrað við vegartálma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú fór í verra, hjá dómsmálaráðherra, að mínu mati.

Ríkisvaldið með dómsmálaráðherra í fararbroddi hefur verið að gera að því skóna að það vantaði lagaheimildir til að stunda njósnir um landsmenn.

Hlera síma og fylgjast með ferðum manna og helst komast að því hvað þeir séu að hugsa. Málatilbúnaðurinn hefur hlotið litlar undirtekktir hjá landsmönnum.

Svo skýtur þessu hryðjuverkamáli upp. Masað hefur verið um að lögreglan hafi kallað eftir löggjöf um forvirkar rannsóknarheimildir. Persónulega fannst mér upphaf þessa máls með eindæmu og leit svo á að nota ætti það í áróðri fyrir frumvarpi  sem dómsmálaráðherra væri meðí smíðum.

Sem sagt gráupplagt að fíra einhverju  svona upp. Nota prentara til að búa til vopnin sem fáir aðhyllast að sé hægt, sem þó virðist eiga sér einhverja stoð og sannleika. Ég hygg að Kári Sölmundarsson eða Skarphéðin frá Bergþórshvoli hefðu haft litla trú á slíkum vopnum.

Nú er búið að semja ákæru um þau ætluð voðaverk sem þeir hendteknu ætluðu að fremja. Ákveðið er að gefa út ákæru í málinu, sem lögmaður sem fer með málið og er vel að sér í sakamálréttarfari segir að málið sé allt mjög loðið.

Þetta er eins og með skattalög og samninga sem eru samin, en þurfa að vera kafloðin svo hægt sé að smjúga og leika sér og þvæla um við dómstóla. Það verður alvega að vera ljóst að einhver hafi framið staðsettan glæp, en getur ekki verið eins í skáldverki eins og Kiljan fór með efni er varðaði Jóni Hreggviðssyni, ja það gæti verið að ég haf drepið böðulinn, en ég veit ekki. Voru ekki allir fullir og yfirvaldið líka, svo svona mál eru bara ómark.

Þetta fór nú allt á verri veginn þó ekki sé það  alveg víst að svo sé. Snjallt að koma sér í mjúkinn hjá þeim sem drag á fyrir dóm að stytta gæsluvarðhalds tíman, ef það væri hægt, gjöra svo vel.

Manni dettur fyrst í hug að málið sé í mikilli þoku og villum eins og eignardómsmálið um Landmannaafrétt endaði í. Þ.e.a.s. það voru engin lög sem hægt væri að dæma eftir og upplýsti Hæstiréttur að það væri í lófa lag fyrir Alþingi að semja lög um það sem upp ávantar. Var því í raunin óskað eftir lögggjöf um eignarrétt á afréttum og almenningum og upp úr þeim málarekstri spruttu þjóðlendulögin sem voru til þess fallin að úrskurða um hver ætti hvað.

Þannig gæti þetta hryðjuverkamál sem hugsanlega hefur verið diktað upp endað.

Það er vonandi að ekki verði lögreglumenn til gæslu fangana, prentaðir út úr góðum Canonprentara.

Þannig fór Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra, Sjálfstæðisflokksins, að, þegar hún stillti upp pappalöggunum hér um árið til sparnaðar. Það verður ekki sagt um sjálfstæðismenn að þeir kunni ekki trikkin.


mbl.is Segir ákæruna mjög loðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tenerife ferðir almennings

Vafa laust hefur þessi ótímabæra vaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands gert meira ógagn heldur en gagn og haft vond áhrif á alla vinnu og hugarfar við samningaborðið.

Hvernig almenn vaxtahækkun stýrivaxta gæti minnkað ferðalög til Teneriferðir skil ég bara ekki og að hinu leytinu að verja gjaleyrisforða þjóðarinnar er enn þá erfiðar. Svona hagfræði og notkun virðast vera einhverjar helgiathafnir sem ekki má trufla með einhverju pexi um kaup og kjör.

Ef þetta hefur átt að vera ámenning til verkalýðsins um að hafa sig nú hægan þá er ákvörðunin í vitlausam umbúð. Kemur á vitlausum tíma og sprengjan á vitlaut skotmark.

Held að vaxta ákvörðuni hafi veri röng í tíma og rúmi. Farsælast að draga hana til baka svo samningsaðiljar hætti að vera pirraðir.

Ef of mikið streymi af gjaldeyrir er út úr Seðlabankanum er málið og vöruviðskipta jöfnuður óhagstæður, þá er það sér mál. Það þarf ekki að hækka allt í þjóðfélaginu eins og sumir fullyrða að gerist við hverja ákvörðun á hækkun á stýrivöxtum sem eins og sagt er.

Það er ýmislegt fleira sem er undir  í þessum samningaviðræðum Þó það beri ekki mikið á því. Nú erum nefnilega langtíma áhrif Hrunsin mikla að koma fram. Það vantar allstaðar peninga. Þeirra þarf að afla og það er þekkt hvernig það er hægt og þarf ekki að hafa mörg orð um það. Nú þarf að núll stilla þessa bévítis vaxtaákvörðun. Þá fer þetta að ganga, jólin eru að skella á eins og segir í textanum. Þeim verður ekki sleppt eins og var gert í leikritinu Delríum Búbonis árið 1960. Jafnvægismálaráðherrann og forstjórar eru að leggja á ráðin um að flytja inn útlendan lúxus handa "sauðsvörtum íslenskum almúganum" og hindra sólarlandaferðir, en óvænt atvik setur strik í reikninginn og skyndilega er alls óvíst um jólin. Nú er seðlabankastjóri orðin jafnvægisráðherra og má ekki trufla pöpulinn að semja.


mbl.is Staðan krefjandi og viðkvæm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú verður fólk að vera frumlegt og hugmyndaríkt.

Það blæs ekki byrlega þegar viðræðun um kaup og kjör eru kominn í hús. Nú þarf  fólk að vera frumlegt og hugmyndarík og finna einhverja nýja takka til að ýta á. Þegar menn beygðu inn á þjóðarsáttar afleggjaran þá kom ríku vilji til að ná árangri.

Það er spurning hvort ekki væri hægt að hafa leikara í einhverri samaninganefndinni öðru meginn.

Skemmtilegt atvik gerðis þegar ég var í hestferð með hestamannafélaginu Fák. Við komum ríðandi niður Fljósthlíð, eftir hringferð um Fjallabaksleiðirnar og komum í Goðaland, allir í litklæðum. Þar fengum við okkur nesti. Fljótlega ekur dráttarvél með gamla heyþyrli aftan í. Segi ég þá,, nú það eru bara bændur hér enn í Fljótshliðin en hún er meira og minna kominn í eyði á ársgrundvelli. Nei segir ferðafélagi minn sem stóð næst mér, þetta er leikari, leikari segi ég, já sko hann er að leika bónda, það eru engir bændur hér lengur, sagði félagi minn Það þarf að sýna að þetta er íslensk sveit. Ég varð soldið hissa, en þetta var einmitt það sem mér hafði dottið í hug með Hveravelli og Landmannahellir að hafa fólk sem hefði þar við dvöl og léki útilegufólk. Það verður að gera eitthvert trix sem virkar. Láta einhverja koma inn í samninganefndina sem skilgreindir væru sem samninganefnd ríkisins. Kosturinn við það er að það þyrfti ekki að semja neina rullu.Hún liggur hingað og þangað í frösum og og orðaskaki í þjófélaginu. Þegar þetta væri komið kring þá væri hægt að senda Halldór heim  eða í kaffi og semja síðan á augabragði.


mbl.is Katrín boðar til fundar í Stjórnarráðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband