Hrafnkell Freysgoði

En þá er Hrafnkell hafði land numið á Aðalbóli, þá efldi hann blót mikið. Hrafnkell lét gera hof mikið . Hrafnkell elskaði eigi annað goð meira en Frey, og honum gaf hann alla hina bestu gripi sína hálfa við sig.

Hrafnkell byggði allan dalinn og gaf mönnum land, en vildi þó vera yfirmaður þeirra og tók goðorð yfir þeim. Við þetta var lengi nafn hans og kallaður Freysgoði, og var ójafnaðarmaður mikill en menntur vel.

Hann þröngdi undir sig Jökuldalsmönnum til þingmanna. Hann var linur og blíður við sína menn, en stríður og stirðlyndur við Jökulsdalsmenn, og fengu þeir af honum öngvan jafnað.

Hrafnkell stóð mjög í einvígum og bætti öngvan mann fé, því að engi fékk af honum neinar bætur hvað sem hann gerði.

Úr Hrafnkels sögu Freysgoða.


mbl.is Um 70 nemendur fengu íslenskuverðlaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband