Klofningur hjá Framsókn

Það er áhyggjuefni að Framsókn sé að klofna vegna deilna um forustusætið í Reykjavík. Það kann ekki góðri lukku að stýra, þegar deilt er í litlum flokki. Skemmst er að minnast þegar Björn Ingi Hrafnsson hvarf úr forustunni vegna deilna. Var svo komið fyrir flokknum að hann átti örðugt að manna nefndir og var orðinn svo fá liðaður að hann varð að grípa til utanfélagsmanna til að manna nefndir.

Má búast við miklum hjaðningavígum og bak rýtingstungum að hætti Framsóknarmanna hér á höfuðborgarsvæðinu. Ætla má að kvenfélög dragist inn í þessa skálmöld vegna aðdrátta- og lokkandi áhrifa kvenfélaga í svona orrahríð og er þar hægt að minnast þess sem gerðist í Kópavogi.

Er þetta leitt því Framsóknarmenn geta verið geðþekkir menn og almennilegir sérstaklega í göngum og réttum.

Og hver á þá að stjórna borginni ef Sjálfstæðismenn missa Framsókn úr samstarfinu og allt fellur um koll?


mbl.is „Framboðið kom á óvart“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Ég held að það sé spurning um líf eða dauða fyrir Framsókn í borginni að losna við spillingarstimpilinn sem er á Óskari Bergssyni.  Ég held að ef þeir fari fram með Óskar sem oddvita, þá fái þeir ekki mann kjörinn hér í borg.

Sigríður Jósefsdóttir, 15.11.2009 kl. 22:24

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Þetta verður erfitt hjá flokknum, en vonandi gengur þetta.

Litlir flokkar geta verið gagnsamir, ef þeir eru nógu hlýðnir, og fá eitthvað fyrir sinn snúð.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 16.11.2009 kl. 07:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband