Heyrt hef ég þá sögu að Seðlabankinn hafi eitt sinn verið ein skúffa í Landsbankanum. Ég sel það ekki dýrara en ég keypti. Seðlabankinn er dýrindis höll með Landnámsmanninn á bæjarhólnum. Þar ku vera íburður og mikið málverkasafn innandyra. Þar hefur ákveðin elíta hreiðrað um sig og talið sig ósnertanlega. Nú í þessu erfiða árferði líður þeim ef til vill eins og heylausum bændum á Þorranum.
Alþingishúsið er gamalt hús. Á þaki hússins er skjaldarmerki Danakonungs. Það er lítið rými fyrir þingmenn í þingsal og borðpláss takmarkað fyrir skjöl. Á degi hverjum eru alþingismenn minntir á það að þeir eru annars flokks með því að þurfa að horfa á ráðherrana við háborðið í betri stólum. Það ætti að gera Alþingishúsið að safni og veita almenningi aðgang að því.
Það er löngu tímabært að Alþingi komist í nýtt húsnæði og ráðherrarnir og framkvæmdavaldið hafi ekki yfirburðastöðu sálræns eðlis í þinghúsinu. Þá mundi sjálfstraust alþingismanna aukast og skilin milli löggjafar-og framkvæmdavalds verða skýrari.
Það gæti verið táknrænt í þeirri stöðu sem þjóðin er nú í, að hún flytti Alþingi sitt í Seðlabankahúsið. Það þyrfti bara að bæta einni grein við Seðlabankafrumvarpið, sem hljóðaði eitthvað á þessa leið;
Jafnframt skal Alþingi flutt í Seðlabankahúsið.
Seðlabankinn gæti svo flutt í eitthvað nýtt og ríflega fokhelt.
![]() |
Stefnt að lokaumræðu á mánudag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 20.2.2009 | 18:14 (breytt 21.2.2009 kl. 00:00) | Facebook
Myndaalbúm
Mars 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 |
30 | 31 |
Bloggvinir
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Bergljót Gunnarsdóttir
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Grétar Mar Jónsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Jón Páll Jakobsson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Kristján Hilmarsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Lilja Skaftadóttir
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Valdimar Samúelsson
-
au
-
cakedecoideas
-
Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 34
- Frá upphafi: 578580
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er stórbrotin pæling. Já og góð og kjarnyrt bloggsíða, til hamingju með það!
Snæbjörn Ragnarsson (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 12:50
Ágætis hugmynd að flytja Seðlabankann og þá helst aftur í skúffuna góðu en þingmönnum mætti fækka og þá verður meira rými fyrir þá sem eftir sitja.
.
Jón Örn Bragason (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 20:45
Algjörlega sammála síðasta ræðumanni, óvenjuleg og frumleg hugmynd.
Ágústa (IP-tala skráð) 21.2.2009 kl. 22:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.