Flugnám er dýrt

Held að hagfræðingurinn ættu nú aðeins að doka við og bera saman nám til að verð flugmaður eða flugstjóri. Nemendur í flugnámi þurfa að borga tugi þúsunda fyrir æfingakennslustundir, á meða almennt háskólanám er nánast ókeypis. Það þarf nefnilega alltaf að skoða stofnkostnaðinn áður en hægt er verðleggja hlutina. Bæði í þessu sem öðru.

Og svo þegar er verið er að meta hlunnindi flugsétta svo sem einhverjar ferðir í sæti sem ekki seljast í það og það skiptið þá er það nú útlátalítið fyrir atvinnuveitandann að leyfa launþeganum að sitja eina salibunu.

Og tollurinn er hann einhver hlunnindi? Vinir og ættmenn koma og drekka þetta allt saman. Svo ekkir er mikinn gróða að hafa út úr því, nema traust vinátta.

Svo þótt konurnar fái ef til vill nylon sokka , þá er alltaf verið að reka sig í eitthvað eða einhver að klóra í þá. Einhver flugdólgurinn.

Svo það er margt að athuga fyrir hagfræðinga þegar reiknað er. Þetta er ekki eins og hjá bændum. Bara að telja inn að kveldi og leggja saman.


mbl.is Segir verkfallsvöld flugstéttanna mikil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Í augum Steina alveg skýrt,
alla flugið lokkar,
oft að fljúga er þó dýrt,
eyðilagðir sokkar.

Þorsteinn Briem, 14.5.2020 kl. 19:09

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Hæ nafni og þakkir fyrir að setja þessa vísu hér inn. Það er aldrei of mikið af kveðskap. Kæra þakkir fyrir innlitið.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 15.5.2020 kl. 08:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband