Flugrekstur í vanda og hangir á heljar þröm

Flugvellir eru í vanhirðu hefur maður heyrt og innanlandsflug dýrt, En samt er verið að velta því fyrir sér að byggja  nýjan flugvöll fyri innanlandsflug, þjóð sem hefur aldrei byggt stóran flugvöll, þjóð sem á enga peninga.

Nú hrannast upp óveðurský upp á flughimninum og auðvitað verður að passa sig á að lenda ekki í eldingum. Þá geta menn orðið sótsvartir.

Ég kann engin ráð við þessu, en segi eins og kerlingin, fljúga bara nógu hægt og lágt, þá kemur ekkert fyrir.

En Vilhjálmur vill pjakka áfram og það er gott að menn vinni í þessum málum. Það er náttúrlega afar einkennilegt að ekki sé sem mest reynt að samhæfa flugreksturinn og reyna að fljúga sem mest út frá landsbyggðarfluvöllum. Svo kæmu einhverjar millifærslur til greina  á fjármunum til að jafna aðstöðu fólks ef um veikindi er að ræða og fólk þarf að leita sér lækning um langt skeið. Slík getur orði mjög íþyngjandi og með allri þessari samþjöppun og niðurskurð í heilbrigðiskerfinu, þá hlýtur að vera búið að spara háar fjárhæði.


mbl.is Áhyggjur af „óveðursskýjum“ í fluginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband