Snjöll og frumleg leið hjá Margréti

Vegakort af ÞingvöllumÞetta er alveg snilldar hjáleið sem Margrét velur þarna og kemur á óvart og sýnir að stjórnmál eru list í eðli sínu.

Við upphaf kjörtímabilsins þarf Alþingi að úrskurða um lögmæti kjörbréfa en fyrir kjörbréfanefnd lá fyrir kæra um að kosningarnar væru ólöglegar vegna misvægis atkvæða. Þurfti Alþingi að úrskurða. Þar kom fram enn einn lagalapsusin í ljós, þar sem kjósandanum er ekki gefin neinn möguleiki á að halda málinu áfram eftir neinni braut innan kosningalaganna.

Margrét var eini þingmaðurinn sem hafði fyrirvara á að samþykkja kjörbréfin vegna þess atriðis svo henni er málið hugleikið, en í nýju stjórnarskránni er reynt að lagfæra þetta misvægi, þó ákvæðið sé ekki nógu skýrt og frekar ruglingslegt.

Það má eiginlega segja að stjórnarmeirihlutinn sé heimaskítsmát eftir þennan leik Margrétar á taflborði stjórnmálanna.

Það verður forvitnilegt að fylgjast með þessari málsþróun að ný stjórnarskrá rísi úr öskustónni sem breytingartillaga.


mbl.is Stjórnarskrárfrumvarpið lagt fram sem breytingartillaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbjörn Árnason

ég er algjörlega sammála þér Þorsteinn

Kristbjörn Árnason, 14.3.2013 kl. 17:50

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er ég líka.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.3.2013 kl. 18:43

3 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Það verður gamana að fylgjast með framgangi málsins.

Heppilegra væri að kalla þetta viðaukatillögu frekar en breytingartillögu eða hvað?

Þorsteinn H. Gunnarsson, 14.3.2013 kl. 19:07

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Eftir stendur spurningin: Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskránni?

Jón Steinar Ragnarsson, 15.3.2013 kl. 01:21

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Guðmundur Ásgeirsson, 15.3.2013 kl. 08:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband