Það er strúktúrinn sem skiptir máli maður.
Lögmaður gæsluvarðhaldsfangans hélt því fram að kontóristi í Landsbankanum hafi verið aðal orsakavaldur að þeim vandræðum sem skjólstæðingur hans hafi ratað í.
,,Kæra fjármálaeftirlitsins á hendur Sigurjóni Þ. Árnasyni er fyrir notkun á strúktur sem núverandi forstjóri FME bjó til sem starfsmaður Landsbankans. Þetta segir Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Sigurjóns. Hann telur að engin skilyrði séu fyrir gæsluvarðhaldi skjólstæðings síns". Heimild: Mbl.is
Nú er þessi kontóristi í Landsbankanum orðin forstjóri FME.
Vafinn liggur einmitt í strúktúrnum. Hver teiknaði þetta bankahrun upp? Var það einhver undirmaður í Landsbankanum fyrir margt löngu eða Hrunverjar.
Sérstakur saksóknari er að reyna komast að því. Af þeim sökum hefur hann ekki viljað að orðræða stæði milli fv. Landsbankastjóra Sigurjóns Þ. Árnasonar og annarra manna í landinu og víðar um heim.
Bankahrunið á Íslandi er alþjóðlegt mál og varðar hagsmuni margra kröfuhafa víða erlendis. Þess vegna er krafan mjög brýn að komast til botns í málinu.
6-7 þúsund milljarðar hafa tapast í öllu Hruninu. Það má kaupa ansi margar bújarðir fyrir allt það fé.
Eðli máls samkvæmt veltir almenningur nú fyrir sér strúktúrnum og hvernig mál koma til með að skipast í Hæstarétti við þetta sératkvæði.
Telur rök skorta fyrir gæsluvarðhaldi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 21.1.2011 | 15:23 | Facebook
Myndaalbúm
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Hörður B Hjartarson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Jón Páll Jakobsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kristján Hilmarsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Lilja Skaftadóttir
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sumarliði Einar Daðason
- Valdimar Samúelsson
- au
- cakedecoideas
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Guðjón E. Hreinberg
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 11
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 76
- Frá upphafi: 566932
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 60
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Í aðdraganda hrunsins týndu menn glórunni í græðginni.
Það tóku bandarísk yfirvöld 3 ár að finna út úr hvað olli verðbréfahruninu mikla í Wall street haustið 1929.
Við verðum að bera traust til sérstaks saksóknara að hann beri gæfu til að leysa vel úr þessum flækjum.
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 21.1.2011 kl. 20:05
Hann hlýtur að vera með verkfræðinga, stærðfræðinga og arkitekta til að teikna strúktúrinn og hvernig þræðir liggja þvers og kruss og hvernig öllu verður púslað saman.
Kv, ÞHG
Þorsteinn H. Gunnarsson, 21.1.2011 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.