Dýravernd

GóðhestarHalldór Runólfsson er víst góður og gegn maður og vel menntaður dýralæknir. Ástæða er til að óska honum til hamingju með næsta 5 ára starfstímabil.

Það þarf að gefa gaum að meðferð dýra aðbúnaði og hollustu háttum þeirra.

Ég held að bændur séu yfirleitt dýravinir og vilji fara vel með dýr. Þó er nú pottur sumstaðar brotinn í þeim efnum. Stundum verða menn samdauna ákveðnu umhverfi og skynja ekki að það þurfi að gera úrbætur og forvarnir svo dýr séu örugg í umhverfi sínu og líði vel. 

Í Bændablaðinu sem kom út í gær er er gerð grein fyrir aukinni tíðni stórbruna í landbúnaði og hefur brunamálastjóri Björn Karlson þungar áhyggjur af þeim.

Eftirfarandi tafla er þar birt um stórbruna þar sem búpeningur hefur brunnið inni:

Knörr                         árið 2004  Um 600 fjár

Grænahraun               árið 2005  3600 hænur

Húsatóftir                   árið 2006  Um 40 nautgripir

Stærri Árskógur         árið 2008   Um 200 nautgripir

Vestara Fífuholt          árið 2008   um 120 nautgripir

Ásmundarstaðir           árið 2008   um 4000 hænur

Tjörn                         árið 2010   á þriðjahundrað landnámshænur.

Heimild: Bændablaðið 22. tölublað 2010 16. desember

Ég minnist þess ekki að það hafi verið tekið viðtal um þessi mál í fjölmiðlum við ráðamenn í landbúnaði eða aðra sem láta sig dýravernd skipta.

Ég vakti athygli á þessum málum á Málþingi um ábyrgt búfjárhald sem Dýraverndarsamband Íslands hélt í nóvember 2009 og lagði þar fram skýrslu sem ég útbjó og dreifði henni til stjórnar sambandsins en hef ekkert verið að flíka henni frekar.

Ég held að það verði að grandskoða umhverfi og aðbúnað dýra á Íslandi og gera úrbætur.

Til þess er nýskipaður yfirdýralæknir vel til forustu fallinn.


mbl.is Halldór áfram yfirdýralæknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fjarki

Þessi víst góði og gegni maður hefur líkahaldið hlífiskildi yfir starfsemi Dalsmynnis Hundagallerý, sem hefur vægast sagt vafasaman feril. Og hann sá til þess að almenningur fengi ekki aðgang að opinberum gögnum um starfsemina og athugasemdir sem fram höfðu komið hjá umhverfisstofu.

Er reyndar á þeirri skoðun að þessi maður ætti að sæta rannsókn vegna þeirra vinnubragða.

En spilling tekur á sig ýmsar myndir, að líta framhjá slæmri meðferð á dýrum þrátt fyrir ábendingar, telst spilling í mínum huga.

Fjarki , 18.12.2010 kl. 13:52

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Svo er það hrossasóttin sem var flutt til landsins. Þarf ekki eitthvað að líta á það mál.

Það er nú ekki svo lítið talað um smitssjúkdóma  en svo er allt í einu allur hrossastofninn orðin fárveikur og bændur verða nærri því að fara á tveim jafnfljótum í göngur. 

Ég var að koma frá útlöndum um daginn og lenti í því að stíga ofan í hundaskít áður en ég lagði af stað í leigubíl út á flugvöll. Ég reyndi að þrífa þetta eins og ég gat á grasi. Svo þegar ég kom út á flugvöll þá skimaði ég eftir sótthreinsiaðstöðu sem engin var. Þannig að ég varð að fara inn á klósett og sótthreinsaði þetta upp úr koníaki. Maður verður að fara varlega og vera ekki að bera inn í landið smitefni.

Svo þegar ég kom til Keflavíkur fór ég að skima eftir sótthreinsiaðstöðu á vellinum en sá enga, en í fríhöfninni var nóg af víni og þá skildi ég af hverju er lögð svona mikil áhersla á vínsölu á flugvöllum.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 18.12.2010 kl. 15:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband