New York-Glitnismálinu vísað til Íslands

BátarÞá liggur það fyrir að þessu málið hefur verið vísað heim til Íslands með skilyrðum, þar sem íslenskir dómarar koma til með að fást við það.

Mín tilfinning er að það hafi verið rétt ákvörðun að hefja málið í New York.  Það kemur í veg fyrir að málið sé eyðilagt á síðari stigum. Fyrir liggur að féð var mest tínt saman til rúnings (skuldabréfaútgáfa) í New York. Það  má segja að bankinn hafi verið rúinn inn að skinni.

Öll grunnvinna málsins kemur til með að nýtast við íslenska dómstóla og auk þess er hægt að bæta nýjustu upplýsingum varðandi efnahag bankans samkvæmt þeim gögnum og skýrslum sem sérstakur saksóknari hefur aflað.

Jón Ásgeir tjáir sig um málið og hefur áhyggjur af því að slitastjórn sé að sóa fjármunum í málarekstur og rýra þannig hagsmuni kröfuhafa. Hann lýsir því jafnframt yfir að hyggjast fara í skaðabótamál. Það er varla tímabært fyrr en málinu er lokið á Íslandi. Þetta trikk er eingöngu hugsað til þess að hræða. En ég held að það vilji bara svo til að það sé enginn hræddur.

Málið er fjölþjóðlegt og það það má segja að dóms og bankamál séu að verða heimsvædd í ljósi þeirrar tækni sem fyrir hendi er í fjarskiptum þegar fólk og fyrirtæki getur bara stutt á ENTER til að færa háar upphæðir milli heimsálfa.

Því skiptir máli að íslenskir dómstólar taki  með festu og einurð á þessu máli þegar því verður stefnt fyrir íslenska dómstóla.

Mörg fræg mál eru til úr íslenskri sögu og má þar t.d. nefna eftirmál og málaferli vegna Njálsbrennu.


mbl.is Glitnismáli vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbeinn Pálsson

Amerísku skilyrðin sem þeir ákærðu þurfa að samþykkja er í raun áfangasigur Íslensku þjóðarinnar. Stóra spurningin er hvort íslenska dómskerfið þorir og getur tekið á stórmáli af áður óþekktri Íslenskri stærðargráðu heilindum.

Kolbeinn Pálsson, 14.12.2010 kl. 22:40

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Ég hef alltaf haft trú á íslensku dómskerfi og ég hellt að þetta sé nú allt að koma, en það tekur tíma. Stefnan rífur fyrningarfrest, svo það þarf bara að drífa þetta áfram. Það er best fyrir alla.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 15.12.2010 kl. 07:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband