Sjómennirnir mínir

Það er orðin venja að vera með smá einfalda athöfn við Minningaröldur Sjómannadagsráðs í Fossvogi. Þar er blásið í trompet  farið með bæna oMinningaröldur 2010 Bg lagður blómsveigur að Öldunum.

Í ár var staðinn heiðursvörður af Landhelgisgæslu Íslands og Norsku strandgæslunni. Myndirnar frá athöfninni eru frá 2009 og 2010.

 

Hér er skrá yfir sjómenn úr minni fjölskyldu. Þetta er góður hópur.

Móðurbróðir, Óskar Magnússon f. 31 des.1896 d. 24. jan. 1930, formaður, fórst með vélbátnum Snæbirni frá Súðavík.

Móðurbróðir, Þorvaldur Matthías Magnússon f. 19. ágúst 1895 d. 12.jan. 1976 Síðast bátsmaður á togaranum Ingólfi Arnarsyni. Af honum er til þekkt ljósmynd eftir Kaldal þar sem frændi er í sjóstakk og með sjóhatt, táknmynd fyrir íslenskan sjómann.

Móðurbróðir, Svanberg Magnússon f. 9. jan.1909 d. 25.apríl 1974 skipstjóri. Gerði út trilluna Rúnu frá Hafnarfirði. Bjó í húsi því sem Minningaröldur 2009 Anú heitir Nönnukot í Hafnarfirði og er lítið kaffihús.

Móðurbróðir, Þorsteinn Magnússon f.13.apríl 1913 d. 12. mars 1941 skipstjóri. Fórst með línuveiðaranum Pétursey.

Frændi, Hallgrímur Pétursson f. 16. des. 1916 d. 12. mars 1941 skipstjóri og stýrimaður. Fórst með línuveiðaranum Pétursey.

Móðurbróðir, Skarphéðinn Magnússon f. 16. febr. 1921 d. 26. júlí 1984 stýrimaður á ýmsum skipum.

Móðurbróðir, Einar Magnússon f. 4. júlí 1924 d. 2009. Háseti á ýmsum skipum. Víða þekktur í góðra vina hópi sem snjall munnhörpuleikari.

 

Mágur, Haukur GuðmMinningaröldur 2009 Aundsson f. 20. apríl 1921 d. 16. nóv. 1991.  Skipstjóri og stýrimaður á skipum Jökla h/f. Var skipstjóri m/s Drangajökli sem fórst í Pentlinum við England 28 júní 1960. Þar björguðust allir og gat Haukur með naumindum synt frá sökkvandi skipinu síðastur. Síðar skipstjóri á Ísborginni sem var gamall síðutogari frá Ísafirði sem var breytt í fraktskip.

Mágur, Tryggvi Eyjólfsson f. 24. mars 1930 d. 16.mars 2010. Vélstjóri hjá Eimskipafélagi Íslands. Yfirvélstjóri á m/s Gullfossi.

Faðir, Gunnar Sigursveinn Arnbjörnsson f. 22. maí 1912 d. 14 apríl 1970. Háseti á togurum, Sambandsskipum og skipum Landhelgisgæslunnar.

Bróðir, Birgir Gunnarsson f. 20 okt. 1938 d. 18. febr. 1958. Matsveinn. Fórst með vitaskipinu Hermóði.Minngaröldur 
2009 B

Bróðir, Arnbjörn Gunnarsson f. 19. okt. 1948 Sjómaður, stýrimaður og skipstjóri á skipum í Grindavík og nágrenni.

Systursonur, Birgir Kristbjörn Hauksson f. 26. okt 1962. Háseti á skipi Eimskipafélags Íslands um eitthvert skeið.

Bróðursonur, Gunnar Sigursveinn Arnbjörnsson f. 5 apríl 1978 Grindavík.  Sjómaður og skipstjórnarmaður á fiskiskipum.

Sonur, Erlendur Smári Þorsteinsson f. 27. maí 1971. Grásleppukarl eina fallega vorvertíð.

Frændi Birgir Gunnarsson stýrimaður hjá Eimskip.

Stjúpi Magnús Helgason 2.maður Aðalheiðar sjómaður í Grindavík.

Stjúpi Jón Guðmundsson kallaður Jón súgi frá Súgandafirði 3. maður Aðalheiðar skipstjóri og útgerðarmaður.

Sóphus sjómaður á Ströndum vinnumaður og sjómaður hjá Matthíasi í Kaldraðanesi og sjómaður þar og á Drangsnesi.

Frændi, Friðgeir Höskuldsson f. 31. júlí Minningaröldur 20101947.  Útgerðarmaður og skipstjóri á Drangsnesi á Ströndum

Ekki að gleyma mér, Þorsteinn Hallgrímur, messi á M/s  Öskju frá RVK háseti á Ísborginni RVK og háseti á Lofti Baldvinssyni eina vetrarvertíð undir Jökli. 30 tn. réttindi 1998

Tengdasonur, Auðunn Atli Sigurðssson, Ísafirði háseti m.a. á Guðbjörgunni um nokkurt skeið.

Til hamingju með daginn allir sjómenn.


mbl.is Mikið um að vera á sjómannadegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband