Sumarkveðja

 

Vorljóð

 

Gakktu út í gróandann

gerast ævintýr.

Röðull skín og roðabjartur

risinn er dagur nýr.

Vorið vermir sál og sinni

er vetur burtu flýr.

 

Hvað er betra börnum landsins

en birta vorsins skær.

Hlýja loftið, ljúfa angan

á landið ljóma slær.

Syngur lækur í laut og móa,

lifnar sérhver bær.

 

Borgin lifnar líkt og landið

loftið fyllist klið.

Barnafjöld með bolta hlaupa

og bregða sér í lið.

Alla þyrstir í sumarsælu.

sólinni gleðjast við.

 

Kviknar líf í laufum trjánna,

lyftir þröst á flug.

Af vetrardrunga vorsins ylur

vermir okkar hug.

Vekur vonir, eflir andann,

vorsins styrk og dug.

 

Inga Þórunn Halldórsdóttir

Maí 2007


mbl.is Sumardagurinn fyrsti haldinn hátíðlegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður B Svavarsdóttir

Mér þykir kona þín leyna á sér.. Þetta er frábært ljóð hjá henni.. er hún búin að dudda við þetta lengi?

Hlý sumarkveðja að norðan.

Sigríður B Svavarsdóttir, 24.4.2010 kl. 22:02

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Já, þetta hefur verið háttur hennar alllengi, en farið leynt. Föðurafi hennar Guðmundur Björnsson síðasti bóndinn á Görðum á Álftanesi orti mikið af afmælis og tækisfærisljóðum. Hann var giftur Þorbjörgu Halldórsdóttur frá Sveinstöðum í Þingi.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 25.4.2010 kl. 08:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband