Tveir aðilar fara með löggjafarvald á Íslandi.
Alþingi og forseti Íslands. Alþingi hefur bein áhrif á setningu löggjafar en forseti Íslands óbein áhrif með undirritun sinni á lög frá Alþingi eða ekki.
Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands mælir svo fyrir um formleg samskipti þessara aðila vegna lagasetningar:
26. gr. Ef Alþingi hefur samþykkt lagafrumvarp, skal það lagt fyrir forseta lýðveldisins til staðfestingar eigi síðar en tveim vikum eftir að það var samþykkt, og veitir staðfestingin því lagagildi. Nú synjar forseti lagafrumvarpi staðfestingar, og fær það þó engu að síður lagagildi, en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningarbærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi, ef samþykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu.
Forseti Íslands ákvað að skrifa ekki undir Icesave lögin hin seinni og þar með hefur hann vísað þeim til þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar með ber þjóðinni að úrskurða um þessi mál í atkvæðagreiðslu.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hefur ákveðið að að greiða atkvæði á morgun. Það er hans réttur.
Forustufólk ríkistjórnarinnar Jóhanna Sigurðardóttir formaður Samfylkingarinnar og Steingrímur J. Sigfússon formaður VG grænna hafa ákveðið að mæta ekki til kjörstaðar og greiða því ekki atkvæði.
Það er þeirra réttur að ráða hvað þau gera. Þann rétt ber að virða.
Það eina sem ég hef áhyggjur af þessa stundina er hvort ég fái að gera grein fyrir atkvæði mínu á kjörstað með bókun, af því að þetta er lagaúrskurðaratkvæðagreiðsla.
Ólafur Ragnar ætlar að kjósa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 5.3.2010 | 20:32 | Facebook
Myndaalbúm
Bloggvinir
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Bergljót Gunnarsdóttir
- Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
- Grétar Mar Jónsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Hörður B Hjartarson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Jón Páll Jakobsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kristján Hilmarsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Lilja Skaftadóttir
- Sigríður B Svavarsdóttir
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Sigurjón Þórðarson
- Sumarliði Einar Daðason
- Valdimar Samúelsson
- au
- cakedecoideas
- Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
- Guðjón E. Hreinberg
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 262
- Sl. sólarhring: 438
- Sl. viku: 1063
- Frá upphafi: 570360
Annað
- Innlit í dag: 251
- Innlit sl. viku: 965
- Gestir í dag: 247
- IP-tölur í dag: 244
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mér finnst með ólíkindum yfirlýsingar forystumanna flokkanna tveggja. Á bara ekki orð yfir þetta. Ég og flestir sem ég umgengst fara á morgun og segja nei, nei, nei.
Sigurbjörg Eiríksdóttir, 5.3.2010 kl. 21:56
Þau eru nú búin að greiða atkvæði einu sinni um þetta mál, en Ólafur hefur aldrei fengið að að greiða atkvæði um málið svo það er von að hann noti tækifærið.
Ég held að Samfylkingarfólki og VG grænum líði voða illa núna og séu afar umkomulausir.
Þorsteinn H. Gunnarsson, 5.3.2010 kl. 22:36
Lastu nokkuð bloggið mitt??
Sigurbjörg Eiríksdóttir, 5.3.2010 kl. 23:13
Já, en ég er ekki búinn að lesa allar athugasemdirnar.
Hvernig ferðu að fá svona margar athugasemdir?
Ég mundi fara alveg í hönk ef þetta dembdist yfir mig.
Þorsteinn H. Gunnarsson, 5.3.2010 kl. 23:24
Lyfi lýðræðið.
Sigurður Haraldsson, 6.3.2010 kl. 21:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.