Blendnar tilfinningar

Forseti Íslands er búinn að greiða atkvæði. Víst er það gleðiefni að þjóðin hafi nú fengið það staðfest að hún hafi þann rétt óskoraðan sem 26 gr. stjórnarskrárinnar mælir fyrir um.

En það eru blendnar tilfinningar líka og sorg að vita af þeim ósköpum sem dunið hafa á íslenskum fjölskyldum og heimilum þar sem foreldrar eru að farast úr fjárhagsáhyggjum og börn búa við takmarkað öryggi í uppvexti sínum sem er framundan.

Allt er þetta að kenna aumri landstjórn og fyrirhyggjuleysi. Við sem hefðum átt að geta haft það svo gott.

Tökum dæmi um sveitarfélag sem forsetinn býr í, Álftanes. Þar er búið að skipa sveitarfélaginu sérstaka fjárhaldsstjórn vegna háskalegrar fjármálastjórnar undan farinn ár. Þar hefur verið fjárfest í sundlaug og dýrum götum sem engin grundvöllur hefur veri fyrir og raunverulega að gunnskólabarn hefði geta reiknað það dæmi á A4 með því að deila íbúafjölda í upphæð áætlaðan framkvæmdakostnað.

Forseti Íslands hefur talað upp og mært útrásarvitleysuna og ber sem þjóðarleiðtogi sem slíkur vissa ábyrgða á þessum hörmungum þó hann falli ekki undir lög um ráðherraábyrgð og sé sem slíkur ábyrgðalaus í stjórnarathöfnum sínum samkvæmt stjórnarskrá.

Ég veit ekki hvað er hægt að ráðleggja forsetanum. Hann fleytir sér ekki nema að takmörkuðu leyti gegnum söguna á því að hafa rutt þjóðaratkvæðagreiðslu veginn þó þar fái hann prik.

Það eina sem ég gæti ráðlagt forsetanum er að taka til endurræktunar tún á Bessastöðum og skipta um sáðgresi í þeim svo og aðra garða sem hann hefur umgengist.


mbl.is Ólafur Ragnar búinn að kjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er kannski komin tími til að sameina forsetann og forsætisráðherrann?

Kjósa þann mann beinni kosningu?

Að þjóðin geti kosið sér skipstjóra á þjóðarskútuna sem heldur um stýrið og stendur eða fellur með sínum ákvörðunum?

Hvernig skilgreinum við leiðtoga?

Jón Þórhallsson (IP-tala skráð) 6.3.2010 kl. 11:59

2 identicon

Loksins - loksins !

 Já, loksins  - kominn hátt á sjötugsaldurinn - gerði Bessastaðabóndinn eitthvað rétt !!

 Herodes & Pílatus orðnir vinir !!

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 6.3.2010 kl. 12:10

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Á meðan við vinnuveitendur stjórnvalda stöndum í ströngu við að bjarga okkur undan óráðum þeirra, þá sitja þau á sínum fúla rassi og niðurlægja okkur.  Það er þó einn í stjórnkerfinu sem er uppistandandi og tekur á með okkur, en það er þannig sem forystumenn eiga að starfa.

Það er svo annað mál með gamlar syndir að í þær er ekki potað í miðri orrustu,  heldur lagðar til hliðar til betri tíma.  Ég tek undir með Jóni að þessu þarf að breytta með skinsamlegum hætti, en ekki á meðan þessi stjórn situr.

Nú er að kjósa og það skiptir mjög miklu að kjörsókn verði góð,  þá sjá erlendir hvaða hlutfall stjórnarinnar er og niðurlæging okkar verður minni.          

Hrólfur Þ Hraundal, 6.3.2010 kl. 12:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband