Þekkt bragð

Það er alþekkt bragð að draga fólk út undir réttarvegg og reyna þannig að hafa áhrif á það.

Það er hrein og klár aðför að stjórnarskránni að reyna að vera draga úr því vægi sem þjóðaratkvæðagreiðslan hefur og jafn vel að eyðileggja hana. Vera að blaðra um að hún sé skrípaleikur og það hafi engin áhuga á henni.

Í þjóðaratkvæðagreiðslu hafa allir Íslendingar jafnan atkvæðisrétt, svo mun og að lokum verða við Alþingiskosningar, en hann er misjafn eftir búsetu við þær kosningar.

Hér er lýðveldi en ekki furstaveldi. Það er mjög erfitt fyrir suma að venjast þessu.


mbl.is Vildu hitta formennina eina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Sem snýtt úr mínu nefi.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 4.3.2010 kl. 09:23

2 identicon

Þetta er ekki ósvipuð  þvæla og Ingibjörg fyrrum formaður sagði á fundinum í Háskólabíó, sælar minningar, þess efnis að við værum ekki þjóðin. Þessi þjóðaratkvæðagreiðsla snýst um hug okkar borgarana til þess að „Ekki borga skuldir óreiðumanna“ svo ég vitni nú í annan formann. Það verða skýr skilaboðin sem við sendum heimsbyggðinni á Laugardaginn.  

Birgir Hauksson (IP-tala skráð) 4.3.2010 kl. 21:59

3 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Já SKÝR skilaboð. Nú er bara að hvetja alla til að mæta!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 4.3.2010 kl. 22:01

4 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Ég kem og geng frá þessari lagasetningu!!!

Þorsteinn H. Gunnarsson, 5.3.2010 kl. 07:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband