Ísbirnir éta lítil börn

HornstrandarefurÍsbirnir éta lítil börn þegar þeir eru svangir. Þeir eru ógurlega sterkir  og geta brotist út úr búrum sínum og tekið börnin. Þetta er staðreynd. Ég mundi ráðleggja barnafólki að taka ekki mark á Bestaflokknum varðandi þessi ísbjarnarmál. Því miður er þetta ekki raunhæft mál.

Hitt er eðlilegra að Bestiflokkurinn boðaði borgarafundi vítt og breytt um borgina þar sem þessi mál væru rædd samhliða skólamálunum og hvað væri í matinn í skólunum og hvort nokkur væri svangur.

Bestiflokkurinn gæti afturá móti efnt til hópferðar í sumar á Hornstrandir og Jökulfirði til að skoða refi. Refir á Þessi er BesturHornströndum eru friðaðir líkt og Bestiflokkurinn í Reykjavík og eru ákaflega fallegir og vinalegir eins og fólkið í Bestaflokknum. 

Læt hér fylgja með myndir af refum á Hornströndum sem voru teknar þar. Takið eftir því að þeir borða af leirtaui.


mbl.is Besti flokkurinn safnar fyrir ísbirni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað þýðir orðið mútur?

Orðið mútur er oftast notað um það þegar borið er fé á menn í hagnaðarskini þ.e. fá einhverjar ívilnanir í staðin eða gott veður í einhvejum málum.

Samkvæmt Íslensri orðabók þýðir orðið mútur einnig;

1 tíminn , þegar fuglar fella fjaðrir.

2 raddarhæsi á kynþroskskeiði pilta.

Heimild: Íslensk orðabók bls 451. Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1963.


mbl.is Biðst ekki afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. maí 2011

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband