Skoða skýrsluna betur og leggja svo á ráðin.

Það er spurning hvort þurfi að setja á fót nýtt ráðuneyti? Hvort ekki sé hægt að vista þetta mál einhverstaðar eins og var gert með Seðlabankann fyrst þegar verið var að koma honum á fót.

Slík skrifstofan heyrði undir 2 ráðuneytum, forsætisráðuneyti og utanríkisráðuneyti.

 Nató þarf að íhuga, sem fyrst að reka alla kafbáta á Norður Atlandshafi heim til sín. Slík hernaðartól sem geta sett kjarnorkusprengju í loftið er ólíðandi innan lögsögu fullvalda ríkja.

Bara smala þeim heim, en sennilega örðugt að henda á þá djúpsprengujum.

Svo þarf að efla friðarsamtök og eitt af samningsmarkmiðum í fyrirhuguðum samningviðræðum þó Rússar byrji með glannalegar yfirlýsingar og setja sjálfir skilyrði að hvernig var það orðað, annars verður okkar smningmarkmiðum framfylgt af rússneska hernum. Þannig fara samningsviðræður ekki fram.

Ég sá á myndbandi þegar verið var að starta rússneskum skriðdreka þá var það svipað og þegar Willysjeppa var starta árið sem ég fæddist. Systir mín sagði í fimmtugs  afmæli mínu að ég hafi komið undir á friðardaginn, eftir seinni heimstyrjöldina.

Það væri nú mannsbragur af Rússum að standa fyrir svoleiðis ,,uppákomum ; Heimurinn ætti að geta haft nógan frið.Best væri að skriðdrekarnir yrðu bensínlausir eða að þá vantaði varahluti.


mbl.is „Þurfum við e.t.v. á varnarmálaráðuneyti að halda?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorrablót og árshátíðir

Hélt að svart væri klassísur jarðafara klæðnaður, en svona gellu og sprellkjólar fyrir árshátíðir og þorrablót eru það nýjasta. En nú er einhvernig tíðarandinn mjög breyttur og engin skilur upp né niður í nýungunum alveg eins og á Reykjanesbrautinni.

Það hefði orðið gaman fyrir björgunarsveitarstrákana að fá svon konur í fangið og reyna hlýja þeim.


mbl.is Kjólar markaðssettir fyrir jarðarfarir valda usla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru ráðherrar ráðugir og herrar?

Sigurður Ingi Jóhannsson  telur að það sé óboðlegt að Reykjanesbrautin hafi verið lokuð svona lengi og spurning hvaða ráð hann hafi gefið til að koma málum í rétt horf?

Þetta mál þarf bara að rannsaka í botn hvað kom fyrir, þó björgunarsveitarfólk og Vegagerð hafi nú einhverja hugmynd um það.

Það er gott að nema af fortíðinni og margir eru  sem muna eftir því að bílum var safnað saman við rætur fjallvega og svo fór veghefill á undan og allt gekk eins og í sögu.  Hann var jaxl á Holtavörðuheiðinni Grænumýrarbóndi sem sá um Holtavörðuheiði lengi og svo auðvitað Gunnar heitinn í Hrútatungu. Ekki var mikið um að smá bílar sætu fastir, menn létu það varla spyrjast um sig. Fólksvagen var algengur. Hann var með vélina að afta og reif sig áfram og það var gott að skutla sér í gegnum skafla á ferðinn. Keðjur var hægt að nota. Nú er það varla hægt vegna þess hve allt er þröngt.

Frekar að flutningabílar lentu  stundum í erfiðleikum og þá var oft eitthvert keðjuvandamál.

Eðlilegast er að Almannavarnir hafi frumkvæði að því að málið sé rannnsakað og fært til bókar og ljóst að ráherrann vill eitthvað gera. Það þýðir ekkert að fara kalla menn á einhverja mottu og skammast. Flugfélöginn eiga að krefjast að lögreglan rannsaki þetta allt saman. Fólk er að lenda í þungum útgjöldum vegna  hótelgistinga, sem ekki var gert ráðð fyrir á kostnaðaráætlun ferðarinnar og hver borgar? Svo leiðindi  að lenda í svona þegar fólk ætlar að fara láta sér líða vel.

Nú dugar ekkert ennnnn. Hér er um mörg atkvæði að tefla og málið smitar inn í stofur og mikið fylgi hrynur af ráðamönnum.

 


mbl.is Björgunarsveit flutti líffæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðstæður, pirringur úrræði og æðruleysisbænin.

Það er ástæulaust fyrir almenning að skamma björgunarfólki sem er á lokunarpóstum. Það er hlutverk lögreglu að loka vegum, en lögregla heimilar björgunarsveitum að gæta lokunarpóstum. Er það gert af því að lögreglann hefur nóg á sinni könnu, þess vegna er spurning um hvernig hægt er að merkja starfsmenn lokunarpóst svo það sé augljóst að Björgunarsveitarfólk er með allan rétt til starfans. Hafa einn lögreglumann í lokunarpósstagenginnu, ellegar heimild í reglugerð að björgunarsveitafólk hafi heimild að klæðast sjálflýsandi vestum merktum lögreglu. Allir ættu að geta verið sammála að björgunarsveitir eru ekki þarna staddir að ganni sínu. Þegar menn eru á stórum jeppum þá finnst þeim að þeir hafi einhvern meiri rétt að fara um. Það er miskilningur en þeir hjálpa oft öðrum og eru allir þakklátir fyrir það.

Nú er ljóst af lýsingum að á Reykjnesbraut hefur þróast kaos sem gerist við þessar aðstæður. Dýrt er að flytja bíla í burtu á dráttarbílum eða sérbúnum bílum og væri það of áhættusöm aðgerð þó hún væri augljós til að koma snjómoksturstækjum að. Það getur vantað lagabókstafin til að mögulegt sé að framkvæma slíkt og hver borgar?

Ein spurning: er gamli Vatnsleysustrandarvegurinn opin og ef ekki er hægt að opna hann til bráðabirgða og með nægu öryggi til að það sé hægt hleypa umferð á hann í aðra áttina?

Þá er það síðasta úrræðið sjómannsþjóðarinnar. Eru tiltæk skip til að ferja flugfarþega til og frá Keflavík- Reykjavíkur við neyðaraðstæður sem nú ríkja fólk í uppnámi sem er búið að skipuleggja fyrir löngu utanlandsferð og allt í pati og öngþveiti. Landhelgisgæslan??. Kannske verður hægt að nota Maríu Júlí í svona vekefni Hvar er Óðinn gamli?


mbl.is Fólk pirrað við vegartálma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú fór í verra, hjá dómsmálaráðherra, að mínu mati.

Ríkisvaldið með dómsmálaráðherra í fararbroddi hefur verið að gera að því skóna að það vantaði lagaheimildir til að stunda njósnir um landsmenn.

Hlera síma og fylgjast með ferðum manna og helst komast að því hvað þeir séu að hugsa. Málatilbúnaðurinn hefur hlotið litlar undirtekktir hjá landsmönnum.

Svo skýtur þessu hryðjuverkamáli upp. Masað hefur verið um að lögreglan hafi kallað eftir löggjöf um forvirkar rannsóknarheimildir. Persónulega fannst mér upphaf þessa máls með eindæmu og leit svo á að nota ætti það í áróðri fyrir frumvarpi  sem dómsmálaráðherra væri meðí smíðum.

Sem sagt gráupplagt að fíra einhverju  svona upp. Nota prentara til að búa til vopnin sem fáir aðhyllast að sé hægt, sem þó virðist eiga sér einhverja stoð og sannleika. Ég hygg að Kári Sölmundarsson eða Skarphéðin frá Bergþórshvoli hefðu haft litla trú á slíkum vopnum.

Nú er búið að semja ákæru um þau ætluð voðaverk sem þeir hendteknu ætluðu að fremja. Ákveðið er að gefa út ákæru í málinu, sem lögmaður sem fer með málið og er vel að sér í sakamálréttarfari segir að málið sé allt mjög loðið.

Þetta er eins og með skattalög og samninga sem eru samin, en þurfa að vera kafloðin svo hægt sé að smjúga og leika sér og þvæla um við dómstóla. Það verður alvega að vera ljóst að einhver hafi framið staðsettan glæp, en getur ekki verið eins í skáldverki eins og Kiljan fór með efni er varðaði Jóni Hreggviðssyni, ja það gæti verið að ég haf drepið böðulinn, en ég veit ekki. Voru ekki allir fullir og yfirvaldið líka, svo svona mál eru bara ómark.

Þetta fór nú allt á verri veginn þó ekki sé það  alveg víst að svo sé. Snjallt að koma sér í mjúkinn hjá þeim sem drag á fyrir dóm að stytta gæsluvarðhalds tíman, ef það væri hægt, gjöra svo vel.

Manni dettur fyrst í hug að málið sé í mikilli þoku og villum eins og eignardómsmálið um Landmannaafrétt endaði í. Þ.e.a.s. það voru engin lög sem hægt væri að dæma eftir og upplýsti Hæstiréttur að það væri í lófa lag fyrir Alþingi að semja lög um það sem upp ávantar. Var því í raunin óskað eftir lögggjöf um eignarrétt á afréttum og almenningum og upp úr þeim málarekstri spruttu þjóðlendulögin sem voru til þess fallin að úrskurða um hver ætti hvað.

Þannig gæti þetta hryðjuverkamál sem hugsanlega hefur verið diktað upp endað.

Það er vonandi að ekki verði lögreglumenn til gæslu fangana, prentaðir út úr góðum Canonprentara.

Þannig fór Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra, Sjálfstæðisflokksins, að, þegar hún stillti upp pappalöggunum hér um árið til sparnaðar. Það verður ekki sagt um sjálfstæðismenn að þeir kunni ekki trikkin.


mbl.is Segir ákæruna mjög loðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband