Þetta er eins og í fjárréttum. Það er ekki allt búið fyrr en allt er búið og búið að töfludraga.
Opinberir starfsmenn búnir að fá orlofsuppbót og þá fyrst er hægt að fara að syngja út undir réttarvegg.
Svona eiga fjárbúnaðarráðherrar að vera!!
![]() |
Ekkert búið nema allt sé búið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 6.5.2009 | 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Út er komin bókin; Ástin á tímum ömmu og afa, eftir Önnu Hinriksdóttur. Er bókin unnin upp úr bréfum og dagbókum Bjarna Jónassonar kennara, bónda, sveitarhöfðingja og samvinnumanns í Húnaþingi á ofanverðri 20. öld. Bókin byggir á lokaverkefni Önnu Hinriksdóttur til M.A.-prófs í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands haustið 2008. Anna er dótturdóttir Bjarna og Önnu Sigurjónsdóttur í Blöndudalshólum í Blöndudal.
Mörg ástarbréfanna eru rituð á Syðri-Löngumýri í Blöndudal og fleiri bæjum og hefst eitt af bréfunum svona:
" Anna! Viltu verða konan mín? Heldurðu að þú getir elskað mig? Jeg bið ekki einungis um hönd þína, jeg bið um hjarta þitt. Eigi ég ekki enn huga þinn, vonast jeg eftir að geta unnið hann, því ástinni er ekkert ómáttugt."
Bjarni Jónasson ( 1891-1984 ) biðlaði fyrst bréfleiðis til Önnu Sigurjónsdóttur ( 1900-1993 ) 4. febr. 1920 og lét ekki hugfallast þó hann fengi afsvar í fyrstu.
Bjarni var kennari, fræðimaður, bóndi og sveitarhöfðingi og Anna var húsmóðir á bújörð þeirra hjóna Blöndudalshólum í Blöndudal. Þau voru meðal helstu máttarstólpa í sinni heimasveit og áttu ríkan þátt í uppbyggingu samfélagsins í Svínavatns- og Bólstaðarhlíðarhreppi í Austur-Húnavatnssýslu drjúgan hluta tuttugustu aldar.
Bókin er gefin út af Háskólaútgáfunni í fræðibókaritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar, sem ritstýrt er af sagnfræðingunum Davíð Ólafssyni, Má Jónssyni og Sigurði Gylfa Magnússyni.
Stjórnmál og samfélag | 4.5.2009 | 17:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vinna er frumuppspretta verðmæta og auðs. Án vinnu verða engin verðmæti til, hvorki efnisleg né huglæg.
Það er mikill misskilningur að fjármagnið sé uppspretta auðsins. Fjármagnið er uppsöfnuð vinna + nýting náttúruauðlinda. Fjarmagnið er mikill efnahagslegur hvati og sameiginlega getur fjármagnið og vinnan skapað mikinn efnahagslegan auð.
Segjum að við vildum koma okkur upp kartöflugörðum. Fjármagnið kæmi að landinu í formi dráttarvélar. Ekkert mundi gerast. Síðan kæmu nokkrir verkamenn og bændur. Þeir gætu stungið garðinn upp, en dráttarvélin ynni enga vinnu fyrr en einhver settist upp á hana og færi að herfa.
Þegar mikil verðbólga, er tala menn um víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags og skýra það ekkert nánara út. En verð á vöru og þjónustu hækkar. Hjá okkur er þetta þannig að fjármagnið er verðtryggt en vinnan óverðtryggð. Það skapar misgengi og er í raun ekki réttlátt gagnvar vinnunni.
Á þessum tímapunkti byrja átök milli þessara þátta. Milli þeirra sem hafa ekkert að selja nema vinnu sína og svo þeirra sem selja framleiðsluvörur og þjónustu.
Mín niðurstaða er því sú að verðbólga er átök milli vinnuafls og fjármagns og þeirra sem hafa aðgang náttúruauðlindum og framleiðslutækjum.
Verðbólgan og dýrtíðin eru systur. Dýrtíðin hækkar verð á vörum þegar þær fer að skorta. Dýrtíði getur fylgt í kjölfarkreppu og hækkar verð á vöru og þjónustu.
Þess vegna segi ég, hollur er heimafenginn baggi.
Baráttukveðjur á 1. maí.
![]() |
Kreppa nærð af græðgi" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 1.5.2009 | 09:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Bergljót Gunnarsdóttir
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Grétar Mar Jónsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Jón Páll Jakobsson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Kristján Hilmarsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Lilja Skaftadóttir
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Valdimar Samúelsson
-
au
-
cakedecoideas
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
-
Guðjón E. Hreinberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.10.): 51
- Sl. sólarhring: 129
- Sl. viku: 465
- Frá upphafi: 601813
Annað
- Innlit í dag: 46
- Innlit sl. viku: 388
- Gestir í dag: 45
- IP-tölur í dag: 44
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar