Þegar sá nýfæddi gleymdist

 

Þegar sonurinn gleymdist:

Eitt sinn, í júnílok var ég að flytja fé á fjall. Þá var nýfæddur sonur á heimilinu, f. 16. júní. Móðir hans vildi fá að koma með og var barnið dúðað í galla og alles.

Síðan lagði hersingin af stað. Massey Ferguson 165 með stóran vagn með 50 tvílembur, MF 135 með stóra kerru með lömbum í og svo Landrover með kerru og allt fólkið.

Þetta voru ævintýraferðir. Nú, nú, þegar við eru kominn fram í Dal þá uppgötvast að sonurinn er ekki með í för. Varð nú mikið fum og fát og ekið í snarhasti til baka.

Þegar inn í bæin var komið svaf stráksi vært, innpakkaður á hjónarúminu, tilbúin í fjallferðir, hálfsmánaðar gamall, steinsofandi.


mbl.is Gleymdu barni á gangstétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján H Theódórsson

Ja hérna Þorsteinn! Nú máttu búast við að barnavernd banki uppá, Bragi og félagar.  Ætli svona fyrnist nokkuð? 

  Henti reyndar okkur hjónin að uppgötva einu sinni í miðri messu að eitt af börnunum hafði gleymst heima, sú var reyndar orðin það stálpuð að hafa vit til þess að gera í því að gleymast, því hana langaði ekki í messuna! Önnur afsökun, að börnin voru nokkuð mörg !

Kristján H Theódórsson, 19.8.2011 kl. 09:12

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Börn voru nú bara lögð á milli þúfna hér í gamladaga á engjum.

Kv, gamli félagi ÞHG

Þorsteinn H. Gunnarsson, 19.8.2011 kl. 18:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband