Sættir

Það er nauðsynlegt að sættir komist á í þessari deilu. Ég hvet málsaðila til að leggja sig alla fram í því efni. Það er mikilvægt. Það er ástæðulaust af Sambandi íslenskra sveitarfélaga að auka á úlfúðina í þessu máli. Hitt er svo annað mál að sveitarfélögunum er þröngur stakkur skorinn varðandi aukin útgjöld. Eins er með foreldra, þeir hafa ekki auka peninga til að borga leikskólagjöld.

Það er mín skoðun að börn í leikskóla hafi of langan viðverutíma, þegar þau eru rifin upp fyrir allar aldir til að fara í leikskólan. Síðan eru þau sótt eftir kl: 16:00 og þá eru þau úrvinda af þreytu. 

Ég legg til að við hægjum á þjóðfélagsstarfseminn núna á þessum erfiðu tímun til reynslu.

Förum ekki á fætur fyrr en upp úr átta, í skammdeginu, þá verða börnin sprækari og léttari í lund. Þetta mundi dreifa umferðinni og fækka umferðaslysum.

Síðan væri hægt að sækja börnin upp úr þrjú og fá sér heitt kakó með þeimSmile


mbl.is Hvetja til verkfallsbrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband