Það er leikur að læra

LitagleðiBorgarráð samþykkti í dag að endurskipuleggja rekstur leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila. Hugmyndin virðist vera að spara í rekstri með því að stækka einingarnar. Jafnframt er í fréttinni að þetta verði skoðað faglega.

Vitað er að sumir skólar geta tekið við fleiri nemendum á meðan aðrir eru að springa. Reykjavík er eitt skólahverfi en hverfamörk eru misjöfn. Foreldrar geta ráðið því í hvaða skóla þau innrita börn sín. Venjan er samt að börn innritist í þann skóla sem næst er heimili viðkomandi. Flestir foreldrar virðast hugsa um fjarlægð frá heimili til skóla og vini barna sinna.  Það ætti samt að vera kostur að börnin séu í skóla sem hefur nægt pláss og hefur hagstæðari bekkjarstærðir. 

Þar sem fjármagn er af skornum skammti og fyrirsjáanlegt að ekki verið ráðstöfunarfé til nýbygginga skólahúsnæðis á næstu árum er nauðsynlegt að upplýsa foreldra betur um að börn þeirra geta farið í hvern þann skóla sem þeir kjósa en innrita ber börn fyrir auglýstan innritunartíma. 

Samrekstur leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila virðist því vera kostur sem huga ber vandlega að því þannig er án efa hægt að spara í rekstri. Faglega eiga þessar einingar vel saman og starfið verður heildstætt.

Þannig geta stjórnvöld frekar haft áhrif í þá átt að skólarnir verði sem jafnastir að stærð,faglega sterkir.


mbl.is Vilja endurskipuleggja rekstur skóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband