Sjálfstæðisflokkurinn í sjálfheldu

Sjálfstæðisflokkurinn er í mikilli sjálfheldu nú um stundir. Forustan skynjar það að fólk treystir ekki flokknum eftir bankahrunið. Flokkurinn er eins og sigmaður í bjargi þar sem reipið er að skerast í sundur á bjargbrúninni. Þetta ætti Árni Johnsen að geta útskýrt fyrir félögum sínum í Sjálfstæðisflokknum

Þess vegna er brugðið á það ráð að halda blaðamannafund og fréttamönnum sýndar einhverjar tillögur á A4 sem eiga að heita þingsáætlunartillaga.

Það er  lítilsvirðing við við Alþingi Íslendinga að leggja ekki tillöguna fyrst fyrir Alþingi, þar sem slík mál eru fram borinn, en láta alþingismenn frétta um hana fyrst á Mogganum. Þetta sýnir hverskonar fjölmiðlasirkus er í gangi.

Flokkur sem er kominn með fv. formann sinn og fv. forsætisráherra fyrir Landsdóm og sætir ákæru af hálfu Alþingis sem er einsdæmi Lýðveldissögunni, en þekktist helst á Sturlungaöld þegar Sturla Sighvatson og Órækja Snorrason voru reknir úr landi með Alþingisdómi.

Forusta flokksins hefur haft eitthvert pat af þessari skoðanakönnun og hringt í auglýsingarstofu til að fá ráðleggingar í stöðunni. Og svo er sýningin birt tímanlega fyrir skoðanakönnunina.

Sérstaklega vekur athygli myndbirtingin af málverki af Geir Hallgrímssyni fv. formanni sem var settur í stjórnarandstöðu á sínum tíma, af varaformanni Sjálfstæðisflokksins Gunnari Thoroddsen, sem myndaði ríkistjórn með bónda norður í landi og sýslumanni vestur í Dölum, Framsóknarflokknum og Alþýðubandalagin. Allt fram hjá forustu flokksins. Þá var myndskeið af málverki af Þorsteini Pálssyni, þeim er Davíð Oddson felldi út úr stól formanns Sjálfstæðisflokksins.

Engar myndir voru sýndar af Geir Haarde eða Davíð Oddsyni og ekkert talað um það hvor skerða ætti fjármuni til dómstóla og réttarkerfisins vegna Bankahrunsins en það væri mjög æskilegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að svo væri gert og yrði væntanlega fyrsta verk hans ef hann kæmist aftur til valda.


mbl.is Fylgi ríkisstjórnarinnar hrynur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvar hefur þú verið s.l. 18 mánuði. Þessi liðómögulega ríkisstjórn hefur nær undantekningarlaust kynnt frumvörp sín og tillögur til þíngs á blaðamannafundum eða látið leka í fjölmiðla og hafa þingmenn þá fyrst séð eða heyrt hvað er að koma úr einhverjum leyninefndum. Talandi um sjálfsheldu þá held ég að aldrei í sögu lýðveldisins hafi jafn ráðlaus og dáðlaus ríkisstjórn verið í jafn hrikalegri sjálfsheldu og þessi sem aldrei var fugl né fiskur heldur dauðyfli.

Sveinn (IP-tala skráð) 1.11.2010 kl. 20:53

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Ég minntist ekki einu orði á ríkistjórnina eða hvað hún væri að gera eða hefði gert.

Það er ekkert betra að hver api upp eftir öðrum.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 1.11.2010 kl. 21:37

3 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Þorsteinn - þessi langloka hefði komist fyrir í mun styttra máli - semsagt - þú ert á móti Sjálfstæðisflokknum - er það eitthvað nýtt?

Ólafur Ingi Hrólfsson, 2.11.2010 kl. 03:45

4 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Mér hefur alltaf þótt vænt um marga sjálfstæðismenn sem ég hef umgengist og sérstaklega af gamla skólanum  með einstaklingsframtakið og mannúðina.

En mér mislíkar verk flokksins í seinni tíð og hann er búinn að vinna mörg skemmdarverk á þjóðfélagi okkar og ég sé ekki hvernig hann getur eða ætlar að bæta fyrir það.

Það er ekki nóg fyrir formann flokksins að láta mynda sig með afa sinn og nafna, Bjarna Ben í forgrunn þó  hann hafi verið góður sjálfstæðismaður.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 2.11.2010 kl. 07:01

5 Smámynd: Haukur Gunnarsson

Það sem Sjálfstæðisflokkurnn, Framsókn og Samf hafa slæmt gert, er ekkert á mót þeim skemdarverkum sem VG er að gera á íslensku þjóðfélagi í dag

Haukur Gunnarsson, 2.11.2010 kl. 14:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband