Þetta er alveg hárrétt sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, segir í viðtali við Sjónvarpi að það sé leitt að þessir Icesavesamningar hafi ekki verið settir í stærra pólitískt samhengi, en endað sem tvíhliða lánasamningur, annarsvegar milli Íslands og Hollands og Bretlands.
Samningsniðurstaðan í Icesavemálinu er mistök og með öllu ófyrirgefanleg. Hugmyndagrunnur að samningnum er rangur. Það ætti að vera öllum sæmilega greindum mönnum ljóst að Evrópusambandi á að koma að þessum samningi. Ef reglur Sambandsins eru svo meingallaðar að þær geti raskað tilveru þjóðríkis þá ber Evrópusambandið fulla ábyrgð á slíkum meinbugsreglum. Það er varla ætlunin með Evrópusambandinu að reglur þess kollvarpi tilveru heillar þjóðar eða hvað?
Þess vegna á Alþingi að skipa nýja samninganefnd og bera þessi sjónarmið fram við Evrópusambandið sem Ingibjörg reifaði í sjónvarpinu og fresta frekari umræðu um málið á Alþingi.
Ég hef áður vikið að þessari hugmynd í færslu sem heitir Fjármagnsruðningur og vissi þá ekki af þessum sjónarmiðum, sem Ingibjörg Sólrún hafði uppi í fyrrgreindu viðtali.
Íslendingar verða að krefjast skaðabóta, ef þetta mál á að ganga svona hindrunarlaust fram. Það verður bara að undirbúa málsókn á ríkisstjórnina ef hún ætlar að fara að leggja einhvern Icesaveskatt á borgarana út af þessu máli.
![]() |
Hefði viljað stærri pólitískan samning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | 17.7.2009 | 21:14 | Facebook
Myndaalbúm
Bloggvinir
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Bergljót Gunnarsdóttir
-
Dagrún Steinunn Ólafsdóttir
-
Grétar Mar Jónsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Jón Páll Jakobsson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Kristján Hilmarsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Lilja Skaftadóttir
-
Sigríður B Svavarsdóttir
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Valdimar Samúelsson
-
au
-
cakedecoideas
-
Björgvin Þangbrandur "Birkirmár" Gíslasson
-
Guðjón E. Hreinberg
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.7.): 8
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 803
- Frá upphafi: 589119
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 695
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.