Flest rétt gert í stöðunni

Mér finnst flest sem búið er að gera sé rétt gert. Búið að tryggja lámarks öryggi með fjármunum í launagreiðslur. Greiðslur til þeirra sem verða að borga leigu við þessar aðstæður. Bönd komin að vissu marki á skuldastöðu fasteignalána þannig að ekki er hægt að fara hringja í sýslumanni og láta bjóða upp eignir.

Öryggisgarður umhverfis Bláalónið í vinnslu. Þar hefur verið gagnrýnt að ríkið skuli vera setja peninga í varnargarð fyrir einkahlutafélag sem er búið að vera greiða sér háar arðgreiðslur.

Sú gagnrýni er skiljanlega. En ríkisvaldið getur ekki bara horft út um kýraugða. Það verður að meta það hvort ekki sé skilt að verja jafn mikilvæg lífs nauðsynlegt fyrirtæki til að geta haldið húshitun í lagi.

Hrafnarnir reyna alltaf að plokka ef einhver liggur afvelta ósjálfbjarga. Grindvíkingar eru hörkuduglegir, það haf þeir sýnt það í gegn um árin og eiga skilið að þeim sé rétt hjálparhönd.

Það er náttúrlegaa alvarlegt ef holur finnast hingað og þangð undir Grindavík og er sér könnunarverkefni að rannsaka og verður  auðvitað fundið eitthvað út úr því.

Þetta kemur allt með skipulagðri vinnu og æðruleysi.


mbl.is Mikilvægt að öðlast dýpri skilning á stöðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband