Finn til með leigubílstjórum.

Þegar kvótakerfið var sett á í landbúnaði, var mikið rót á mörgum og rekstur þeirra í uppnámi. Held að þetta sé verra hjá leigubílstjórum.

Það er lítil eða engin aðlögun, þessu er dempt yfir mannskapinn, ekki hægt  að vísa á annað, eins og búháttabreytingar eða Framleiðnisjóð.

Leigubílastéttin er án efa orðin roskin og eftir því sem menn eru eldri er erfiðara að fá starf, við hæfi. Hér þarf að gera hliðarráðstafanir.  En maður sér ekki í fljótu bragði hvaðað vopn er hægt að nota, eins var í landbúnaðarkvótamálunum.

Engin héraðskvóti og alltaf sagt ef einhver þurfti meiri kvóta  vegna nýlegrar fjárfestingar. Þá var alltaf spurt af hverjum á þá að taka? Reynt var að efla frumbýlinga, en hér ekkert borið fram sýnist mér.

Það teygðist á búmarkskerfinu og í raun var það brotið á bak eftur, því framleiðslumarkið jókst fremur en minnkaði. Það var ekki fyrr en snaran var sett um hálsin á bændum, með fullvirðiréttarkerfinu að menn gátu í hvorugan fótinn stigð.

Helst að fá Sturlu Jónsson til skrafs og ráðagerðar.


mbl.is Leigubílstjórar í algjöru uppnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hefur Hopp aflað sér starfsleyfis til reksturs leigubílastöðvar?

Ef já þá er einfaldlega verið að opna nýja leigubílastöð.

Hvenær opnaði síðast ný leigubílastöð á Íslandi?

Ef nei þá er engin breyting að verða á neinu.

Aprílgabb?

Guðmundur Ásgeirsson, 3.4.2023 kl. 09:41

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Það geta ekki allir verið sýslumenn.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 3.4.2023 kl. 10:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband