Ef til vill ekki svona einfalt?

Málið er ef til vill ekki svon einfalt, að setja Ísland í skotlínuna án umræðu og einhvers lágmarks útbúnað og raunhæfa möguleika okkar að komast af, ef eitthvað fer úrskeiðis. Svo væri lámarks kurteisi að reyna finna út hvar málið stendur hjá þjóðinni.

Ísland er sérstaklega góður staður fyrir Rússa að dúndra kjarnorkusperngju á. Landið er fjarri öðrum löndum og afmarkað Slík mundi valda alþjóðlegum terror. Svipað og Pútín upplýsti að umsjónarmenn og sú herdeild sem sinnir kjarnorku búnaði væru mannaðar. Það var undirstaðan á því að hægt var að halda áfram stríðsrekstri.

Allt svona þarf að ræða, Það er ekki víst að orðspor Einars Olgeirssonar  dugi  í þessu tilviki. Fyrst þyrfti að reisa honum styttu í Sovét og líka SÍS fyrir öll gefjunarteppin og prjónasokkana.

Flugskeyti eins og Úkraníu menn hafa á öxlunum til að granda eldflaugum og hverskonar loftförum. Við gætum þurft að fá svoleiðis við hvern vita umhverfis landið.

Þá þarf nú einhver alþjóða umræða að fara fram um þessi mál.

Ég vil benda á hversu mikil snilld var beitt til að fá landið hernumið á sínum tíma. Hermann Jónasson þóttist vera sofandi morgunin sem hernámsliðið steig á land og þóttist ekkert vita.

Málið undirbúið mjög viturlega. Hver maður á réttum stað og í réttu hlutverki. Nú er ég ekki að hvetja til þessa að hunsa Úkraníumenn. Heldur að vera skynsamir og raunsæir.

Það væri hægt að byrja að senda þeim gefjunarteppi og sokka og Rússum refaskinn, helst af Ströndum og útskýra galdratrúna.


mbl.is Ísland styður inngöngu Finna í NATO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Samkvæmt Sambandslagasamningi Íslands og Danmerkur frá árinu 1918 var Ísland opinberlega hlutlaust ríki í seinni heimsstyrjöldinni, sem kom þó ekki í veg fyrir að Þjóðverjar sökktu íslenskum skipum, enda sigldu mörg þeirra með fisk til Bretlands. cool

Hlutfallslega svipaður fjöldi Mörlendinga og Norðmanna dó vegna seinni heimsstyrjaldarinnar. Ráðist var inn í bæði Ísland og Noreg og ríkin hersetin, Noregur af Þjóðverjum og Ísland af Bretum, þannig að hlutleysið hafði þar ekkert að segja. cool

Ísland og Noregur voru svo stofnríki NATO árið 1949 og að sjálfsögðu er ekkert ríki í NATO hlutlaust ríki.

Í Eistlandi er fólk af rússneskum ættum um 24% íbúanna en árið 2001 voru þeir um 17% þeirra sem þá bjuggu í Úkraínu. cool

Eystrasaltsríkin, Eistland, Lettland og Litháen, eru nú öll í NATO og að sjálfsögðu hvarflar ekki að Rússlandi að ráðast á NATO, sem er miklu meira herveldi en Rússland.

Og friðarsinninn Katrín Jakobsdóttir tekur sig vel út á NATO-fundum í rauðum skóm. cool

Hversu margir Íslendingar dóu vegna seinni heimsstyrjaldarinnar? - Vísindavefurinn

Þorsteinn Briem, 19.4.2022 kl. 10:08

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

13.4.2022 (síðastliðinn miðvikudag):

Umsóknir Finnlands og Svíþjóðar um aðild að NATO verði samþykktar á leiðtogafundi NATO í lok júní

Vísir.is 5.4.2022:


"Um 91% Úkraínumanna styðja aðild Úkraínu að Evrópusambandinu." cool

17.4.2022 (í fyrradag):

"Talsmaður innanríkisráðuneytis Úkraínu greindi frá því í kvöld að Úkraína hefði hafið umsóknarferli um aðild að Evrópusambandinu."

"Fyrr í apríl sagði Ursula von der Leyen [forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins] að hún tæki fagnandi á móti umsókn frá Úkraínu um aðild að sambandinu. Hún sagði að fyrsta skrefið væri að svara spurningalista sem nú hefur verið gert.

Ursula sagði einnig að venjulega tæki það ár að mynda sér skoðun á máli sem þessu en hún héldi að nú myndi það aðeins taka nokkrar vikur.

"Við munum flýta ferlinu eins og hægt verður um leið og við tryggjum að öll skilyrði verða uppfyllt. Við erum með ykkur þegar ykkur dreymir um Evrópu. Úkraína á heima í Evrópufjölskyldunni," sagði Ursula von der Leyen." cool

Um­sóknar­ferli Úkraínu um aðild að Evrópusambandinu farið af stað

13.4.2022 (síðastliðinn miðvikudag):


Stjórnarflokkarnir tapa allir fylgi og myndu missa meirihlutann á Alþingi

9.3.2022:


Um helmingur Íslendinga hlynntur aðild Íslands að Evrópusambandinu og einungis þriðjungur mótfallinn

Þorsteinn Briem, 19.4.2022 kl. 10:28

3 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

 Línuveiðarinn Pétursey ÍS 100 var skotin niður af þýskum kafbát í sömu árásarhrinu og þegar Reykjaborginn var sökk og Fróði komst laskaður til Eyja með særða áhöfn. Ekkert var vitað um hvernig árásin bar að varðandi Pétureyna. Þakið af brúnni fannst við Garðska sundurskoti. Það var eina vitneskjan. Þegar Þjóðverjar opnuðu skjalasöfn sín  eftir seinniheimstyrjöldina og menn gátu farið að lesa dagbækur kafbátanna fór Friðþór Eydal að rannsaka þær og gerði glögga greinfyrir því hvernig Pétureynni var sökkt Heimild: VIgdrekar og vopnagnýr. 12. mars 1941 kom Kafbáturinn U-37.KL sex að kvöldi hafði kafbátsforinginn sé  skip sem var fiskiskip óvopnað, sem stefndi í suðurátt til Bretlandseyja og silgdi í krákustigum. Honum fAnnst ekki þess virði að eyða tundurskeyti á skipið. Kl 18 26 hóf áhöfnin þegar að skjóta á skipið úr fallbyssum og 37 mm hríðskotabyssum. Segir að áhöfnin hafi haft tækifæri að fara frá borði. þyngdist nú árásin og var brúin lögð í rúst, en þeir náðu ekki að sökkva skipinu með fallbyssum, en svo hittu þeir á vélarrýmið og gaus upp gufumökkur. Síðan segir í skipsdagbókinni, Tók nú að rökkva, sáu þeir þá hlutleysisnfána skipsins, málaðan á kinnungi skipsins. KL 18 43 var skothríð hætt. 9 mín síðar sökk skipið. Enginn björgunarbátur sást en 3 menn  sáust í braki frá skipinu. Silgdi kafbáturinn þá af svæðinu. Kafbátsforingjanum var greinilega brugðið og réttlætti þetta óhæfu verk með meiri skrifum sem verða ekki rakinn hér. Skipið var utan hafnarbannsvæðis og þá á alþjóðlegri siglingaleið. Þarna fóru niður Þorsteinn skipstjóri móðurbróðir minn og Hallgrímur stýrimaður frændi minn. Hann hefur sennilega verið kominn í sjóinn, en það kom fram í draumi eins aðstand hans. Þorsteinn ætlaði að gifta sig á þessum tíma en fékk engan til að leysa sig af. Svona geta örlögin verið grá í stríði.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 19.4.2022 kl. 12:40

4 identicon

Hermann Jónasson var á leið austan frá Laugarvatni, þegar breski herinn kom inn á Reykjavíkurhöfn. Ólafur Thors var heima hjá sér í rúminu.

Björn S. Stefánsson (IP-tala skráð) 19.4.2022 kl. 18:12

5 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Takk fyrir að leiðrétta, Björn. Steingrímur fór með pabba sínum austur. Var ekki lögreglustjórinn að æfa lögreglusveit þarna á Laugarvatni?

Þorsteinn H. Gunnarsson, 20.4.2022 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband