Þarf ekki að fá upp á yfirborðið stefnumarkmið þessa skæruliðahóps?

Væri nú ekki rétt og skylt af yfirvöldum að upplýsa hvert stenumarkmið þessa skæruliðahóps er, til að auðvelda fólki til að mynda sér skoðun á málefninu.

Það þarf að teikna upp glögga mynd af málinu. Það er ástæðulaust að hópurinn sé í reyfum og umkomulaus.

Margar sviðsmyndir hafa svo sem verið dregnar upp í þáttunum  Verðbúðin sem sumir kannast við aðrir ekki.

Þetta þarf að gera til að glöggva sig á öllu málinu.

Best væri ef hægt væri að vera með einhverskonar gagnstefnu.  Þar sem persónur og leikendur væri gert að koma í yfirheyrslur hjá lögreglu, jafnvel að gefa þeim tækifæri til að tjá sig um stykkið. Þeim væri engin vorkun að mæta.

Þá yrði nú hátíð í bæ og sjó. Gráupplagt væri að vera með einþáttung á stórasviðinu á Granda á Sjómannadaginn þar sem varpað væri ljósi á málavexti heilstætt.

Verður hópurinn leystur upp eða hvað framtíð á hann fyrir sér?

 


mbl.is Engin innistæða fyrir uppþoti vegna skýrslutaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Nú eru meintir sakborningar í þessu máli eitthvað að vakna og eru komi með lögmann. Fyrsta spurning sem mér finnst þurfa að svara hver er að kæra? Er skæruliðahópurinn lögpersóna með kennitölu sem getur lagst í málaferli? Spyr sá sem ekki veit.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 18.2.2022 kl. 21:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband