Stórkostlegt efni fært fram í doktorsvörn síra Bjarna Karlssonar við Háskóla Íslands. Efni á heimsmælikvarða.

Hlustaði á framsöguerindi doktorsvarnar Bjarna Karlssonar sóknarprests við Laugarneskirkju.

Maður verður máttlaus í kjálkunum og getur lítið tjáð sig um efnið því það er svo víðfemt. Ritgerðina nefnir hann Vistkerfisvandi og fátækt og er mjög þörf til nútímans.

Nærri því öllu getur maður játað, en efnið er svo flókið að það þarf langa tíma og mikla umræðu til að ná áttum á því.

Er brýn nauðsyn að tengja þetta efni allt saman. Hagfræðingar, mannfræðingar, siðfræðingar guðfræðingar og stjórnmálafólk fá hér mikið efni til að stúdera. Náttúrufræðingar standa nokkuð vel á öðrum jaðrinum og gætu orðið tillögu góðir á vissum vegamótum, nóg fyrir þá að hlusta á þessa stundina.

Þetta efni er á heimsmælikvarða og er efalaust til skoðunnar um víða veröld, en hér er það sett framm á mjög ljósan og forvitnilegan hátt. En hræddur er ég um að leikmönnum finnist þetta torf og ekki  auðmelt.

En stefnubreytingar er þörf í veröldinni og þar koma markskonar kraftar til með að virka.

Þetta efni var svo sem ekki nein útför í kyrrþei eins og fyrirsögnin bendir til, en 2 metra reglan í heiðri höfð.


mbl.is Doktorsvörn í kyrrþey
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Bragi Benediktsson

Ég held að Sr. Bjarni vaði í  villu og svima.

..af því að þeir veittu ekki viðtöku og elskuðu ekki sannleikann, svo að þeir mættu verða hólpnir. Þess vegna sendir Guð þeim megna villu, til þess að þeir trúi lyginni...(2.þessalóníkubréf)

Guðjón Bragi Benediktsson, 24.4.2020 kl. 16:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband