Forusta VG styrkist

Nú eru ýmsir að fara á taugum yfir því að VG vilji endurskoða umsókn að ESB og má þakka fyrir að stafirnir tolli á bloggsíðum manna hér á Mbl.is.

Það eru nú hæg heimatökin að fá Jón Bjarnason til að fara yfir þessi mál og strika undir með rauðu, það sem þarf að gaumgæfa betur.

Þetta er allt saman auðvitað með ráðum gert að hafa Jón ekki í neinni þingnefnd svo hann hafi rýmri tíma við að endurskoða umsóknina. Má búast við að þetta verk taki nokkurn tíma en verði þó búið fyrir kosningar.

Allar aðstæður eru svo sannarlega að breytast mjög hratt í Evrópu og því má segja að staðan sé allt önnur nú varðandi Evrópumálin.


mbl.is Vilja endurskoða ESB-umsóknina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Hvaða forysta???

Óskar Guðmundsson, 12.8.2012 kl. 00:26

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Þetta er aumingjalegt klór í bakkann hjá VG, og ef þau virkilega trúa því að þau munu eiga sér viðreisnarvon með orðum þá er það borin von hjá þeim vegna þess að það verður alveg sama hvað þau munu boða það verða fáir er nokkur sem mun taka þau trúanleg...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 12.8.2012 kl. 07:51

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það eina sem almenning vantaði eftir síðustu kosningar var heiðarleiki, traust og trúverðugleiki. Þetta lið fór létt með að svíkja kjósendur um það eina sem var einhvers virði.

Þau geta skreytt sig með skömminni.

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 12.8.2012 kl. 07:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband