Misskilningur um Icesave

,,Ólafur Ragnar sagði að Icesave hefði valdið vatnaskilum í þessum efnum, ekki bara hvað varðar samskipti við ríkisstjórnarflokkana, heldur einnig við vini og stuðningsmenn til margra ára", segir í fréttinni.

Það virðist vera útbreiddur miskilningur að hægt hafi verið að setja Icesave-fylgið í poka og geyma það niður í kjallara á Bessastöðum eins og hvern annan mó. Síðan sé hægt að taka móinn upp og nota hann sem eldsneyti til að kynda upp í kosningabaráttu um embætti forseta.

Icesave er nú fyrir dómstólum og engin veit hvernig því máli lyktar.

Venjulegt fólk er ekki að velta Icesave fyrir sér núna. Það hugsar um það hvernig það á að framfleyta  sér og sínum.

Þá er nokkur ónákvæmni í málflutningi forseta að einhver vatnaskil hafi verið milli fyrrum stuðningsmanna hans út af Icesave. 

Í ævisögu Ólafs Ragnars; Saga af forseta sem kom út fyrir jól 2008 er þess getið á bls. 97 að  forseti hafi skorið á öll tengsl við samherja sína úr pólitíkinni. Þannig að ef þar er rétt með farið í bókinni að þá köttaði hann sjálfur á þau tengsl löngu fyrir Hrun.

Heimild: Saga af forseta höf. Guðjón Friðriksson nóv. 2008 


mbl.is Segir Jóhönnu í herferð gegn sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Við vorum líka að hugsa um hvernig við framfleytum okkur og börnunum okkar þegar við felldum Icesave ríkisábyrgð. Það er vegna þess sem við erum ekki að tala um Icesave sem hluta af þeirri spurningu lengur.

Svo já, ég er til í að kjósa hvern þann sem forseta sem vill láta framfærslu almennings njóta forgangs í öllum tilvikum. Það er eðlileg forgangsröð.

Guðmundur Ásgeirsson, 13.5.2012 kl. 20:11

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Já já, þetta stórskaðaði land og lýð. Stórskaðaði til lengri tíma litið.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 13.5.2012 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband